Krakkarnir komnir á fullt á leikskólann aftur eftir smá veikindatímabil eftir aðlögun. Enn er grátið þegar ég fer en þau hætta fljótt að gráta og þegar ég kem að ná í þau er grátið. Alveg frábært að vera kannski ein að ná í þau og öll vilja þau að ég taki þau upp og haldi á þeim, það er stundum erfitt að vera þríburamamma. Allir öskrandi og henda sér í gólfið af því ég get ekki tekið þau upp. Já frábært líka þegar að aðrir foreldrar eru að ná í börnin sín og klæða þau í fötin, þá er varla talandi saman fyrir mínum börnum, já þetta er vel upp alið það er ekki hægt að segja annað.
En annars plumma þau sig alveg ágætlega bara á leikskólanum, Karítas Ísold er strax orðin þekkt fyrir danstaktana sína og strákarnir náttúrulega fyrir sjarminn.
Mesta sportið þessa dagana er að kúka á gólfið heima á kvöldin. Hlini snær er með vinninginn fyrir lengd ef marka má viðbrögð Kolla. Kolli sat í sófanum og gláfti á sjónvarpið og byrjað svo að snusa eitthvað út í loftið…og í öllu þessu snusi sínu var honum litið niður á gólf þar sem að “rónalolli” var á gólfinu eins og hann orðaði það. Kolli öskrandi inn í stofu það er bara eins og fullorðinn maður hafi komið þessu frá sér!
Og svona þegar maður er að láta tólin anda aðeins á kvöldin þá þarf maður nú líka að þrífa upp pissupollana hér og þar. Ég veit ekki alveg hvað þetta er með strákana en um leið og bleian er tekin af þeim þá bara byrja þeir að spræna og eru bara meira og minna sprænandi upp um allt og út um allt. En það er gaman að þessu
Annars erum við að fara í frí, ætlum að fara til Flensburgar að hitta Eivor og Alex og strákana þeirra. Við ætlum að prófa núna að taka bátinn til Danmerkur og keyra svo niður Fjón til þeirra. Svo förum við og hittum allt gengið í Lundi, hrikalega hlakka ég til.
Og svo eftir 2 vikur er sama ferð til baka þannig að við ætlum að gista eina nótt í århus á Radisson sas hóteli. það verður sennilega gaman þar í morgunverðarhlaðborðinu
Annars er ég svona að byrja að líta í kringum mig varðandi vinnur, er að vinna í að þýða CV-ið mitt yfir á norsku og svona koma mér í stellingar. Spennandi tímar framundan ekki hægt að segja annað.
jæja farin að sofa, hugsa að ég komi samt ekki inn myndum áður en við förum en ég ætla að reyna að komast í það. Betra að lofa engu en ég reyni mitt besta að komast í það mál.
Já héðan er talsvert að frétta…..veikindasögur og slysasögur halda áfram….
Birkir Smári náði að handleggsbrjóta sig fyrir 2 vikum og er litla skinnið búinn að vera vera í gifsi eða öllu heldur nokkrum gifsum. Hann náði alltaf að klæða sig úr gifsinu og var bara með það einhversstaðar í rúminu þegar ég náði í hann á morgnanna, þannig að tekið var upp á því að setja hann bara í gifs upp fyrir olnboga. Það hefur tollað
En það sem að gerðist var það að hann datt bara niður úr stól og lenti svona illa á hendinni, hann fór sem sagt niður bak meginn á stólnum þannig að fallið var aðeins hærra. En hann er allur að koma til og tökum við sennilega bara gifsið af honum fljótlega. Það var talað um 2 - 3 vikur á spítalanum.
Síðan er það Birgir og börnin, þau fengu sem sagt öll kvef og hálsbólgu og eru búin að vera hóstandi í 3 vikur. Biggi fékk síðan lungnabólgu í kjölfarið og mikið kurrar í krökkunum. Þannig að enginn fór á leikskóla þessa vikuna. Nú vona ég að þau fari að hressast þannig að þau geti farið í leikskólann á mánudaginn.
En það er búið að vera rosalega gott veður síðustu daga og er garðvinnan hafin, ég ætla að bæta í garðinn moreller-trjám eða kirsuberjatrjám, svo er það bara að rífa upp arfa og önnur leiðindi úr beðunum!
Við fórum í íslenska sendiráðið í gær til að fá vegabréf fyrir krakkana og svo notuðum við tækifærið og kusum í leiðinni. Krakkarnir endurhönnuðu náttúrulega sendiráðið og léku á allsoddi
Það var gjörsamlega farið í allt og var kjörklefinn vinsæll. Þar hlupu þau inn og út og tjaldið sem var fyrir var svakalega mikið sport svona eins og gardínurnar heima. Myndatakan tókst ágætlega með strákana en Karítas Ísold þurfti nokkrar tilraunir, hún var að horfa upp í loftið hún, setti hendurnar í andlitið, hún horfði á gólfið, hún horfði á bara eitthvað allt annað en myndavélina.
En hvað um það á endanum hafðist þetta og á meðan dunduðu strákarnir sér við að dreyfa mold út blómapottunum um allt gólf og hinn henti rusli upp úr ruslatunnunum og dreyfði því vel um skrifstofuna.
Þegar að vegabréfsdótið var búið þá kusum við Biggi, já það fór ekki venjulegur stafur á kjörseðilinn okkar, heldur eitthvað nýtt fyrir nýtt Ísland
Vorið er komið til Noregs og því þarf að fara að huga að garðvinnu þó að snjórinn sitji enn í garðinum. Við þurfum að fara að klippa trén áður en við verðum aftur of sein með það. Ferskutréð er tilbúið og fer ég í eplatréð og runnan um helgina. Annars þurfum við að fara að kaupa sumarskó á krakkana á eftir því þau eru að fara að byrja í leikskólanum eftir viku…….ótrúlegt, alveg ótrúlegt!!!
Héðan úr veikindadal er allt bærilegt að frétta. Allir eru reyndar með hálsbólgu og kvef og foreldrarnir líka ;(
Páskarnir voru svakalega fínir með fullt af góðum mat og gestum og að ógleymdum páskaeggjum frá íslandi, guðdómlegt! Húsbóndinn fór í öll eggin á bænum þar sem að hans egg var ekki nógu stórt fyrir hann (Egg nr. 5 frá Nóa), mér og kolla til mikillar gleði.
En guði sé lof er snjórinn að fara og vorið að koma, pallurinn minn er að vera snjólaus þannig að nú er bara að draga fram sólarvörnina og bíða eftir blíðunni.
Ég hafði það af að setja inn myndir og hér koma þær, þannig að nú er bara eftir að setja saman eitthvað myndband af krökkunum og þá er ég bara nokkuð góð.
Annars fer ég að fara kíkja eftir vinnum fljótlega, eða þegar krakkarnir fara á leikskóla þá ætti ég að hafa tíma til að update-a CV og finna mér eitthvað skemmtilegt að gera
Jæja ég hafði það af að klára myndböndin og hér koma þau
Fyrsta myndbandið er tileinkað dugnaði strákanna Bigga og Kolla. Hér eru þeir að moka snjónum…….þeir eru duglegir strákarnir
Seinna myndbandið er öllu fyndnara, hér erum við í fyrstu gönguskíðaferðinni okkar
Já hér er mikið búið að gerast. Allir farnir að hlaupa um en samt er mikið dottið og meitt sig og allir eru í áskrift af marblettum á enni.
Krakkarnir fóru í 15 mánaða skoðun um daginn og fengu í leiðinni bólusetningu við rauðum hundum, mislingum og hettusótt. Og eins og við aðrar bólusetningar varð allt liðið veikt !!!! Birkir Smári fékk meira að segja útbrot út um allan líkamann eins og hann væri með mislinga, voðalega sætur allur í dílum. En hér koma svo nýjustu þyngdar og hæðar tölur.
Hlini Snær 79cm og 10.615 grömm
Birkir Smári 78,5cm og 10.555 grömm
Karítas Ísold 73,5cm og 9.460 grömm
Öll halda þau sínum kúrfum og Karítas Ísold heldur áfram að reka lestina.
Kolli flutti til okkar fyrir mánuði síðan og er búinn að vera rosalega duglegur með krakkana. Karítas Ísold er voðalega dugleg að sníkja mat af disknum hans á kvöldin, fá sér svona aukabita. Svo kemur Anna kærasta hans á morgun og þá er bara orðið fullt hús, og vonandi líka fullt hús af páskaeggjum
Annars fórum við síðustu helgina í mars í skíðaferð með krakkana upp í bústað til Gumma bróður. Svaka stuð, ferðin uppeftir gekk hálfbrösulega vægast sagt. Þegar að við vorum komin í brekkurnar upp á fjallið þá byrjaði bíllinn bara að spóla og spóla og með þessari yndislegu spólvörn hætti hann bara að gefa inn bensín þar sem að það var bara glerhálka undir bílnum og því komumst við ekki upp. Því máttum við snúa við og keyra rúnt á allar bensínstöðvarnar til að finna réttu stærðina af KEÐJUM. já takk fyrir við vorum með keðjur á bílnum.
En eftir að keðjurnar voru komnar undir kaggann þá flugum við upp fjallið. Daginn eftir var svo farið á gönguskíði með mjög svo misjöfnum árangri en árangri þó Hrikalega gaman og ótrúlega flott veður !
Eftir gögnuskíðin fórum við svo að leika okkur á snjóþotum sem að var vinsælla hjá eldri kynslóðinni en þeirri yngri. Svo var heimferð á sunnudegi og gekk hún eins og í sögu, ekkert ælt og ekkert vælt. Já Karítas ælir nærri því í hverri ferð sem fer yfir 30 mín, hrikalega gaman af því. Við erum með æludall sem staðalbúnað í bílnum.
Myndir koma inn mjög fljótlega, er að setja saman myndbönd og svo hleð ég myndunum inn en ég blogga um það þegar ég er búin að þessu
Já það eru ekki góð tíðindi héðan, strákarnir hafa verið að skemmta okkur með Gullfoss og Geysi. Hlini Snær er búinn að vera veikur í viku og er orðin ansi lítill í sér og þróttlaus. Birkir Smári er búinn að vera veikur í 4 daga. Enn sem komið er hefur Karítas Ísold sloppið og vona ég að það haldi sér bara.
Annars var Biggi að taka snjóinn af bílskúrnum okkar og voru það ekki nema 10 tonn af snjó. Nú er bara að fara að príla hér upp á húsþak og losa af þakinu. Hér hrundi niður þak á einhverri Rimi matvöruverslun og allir í panikki að losa snjó af þökum hjá sér. Það verður gaman að fá allan snjóinn niður á bílaplan sem allataf er verið að moka :( En hvað um það betra að hafa snjóinn þar…..
Kolli eða heimalingurinn er að flytja til okkar á morgun. Heimalingurinn mun verða hér hjá okkur þangað til hann finnur íbúð fyrir sig og Önnu sem kemur svo 7.apríl út, mjög góður dagur vægast sagt. Þau fara bara beint í barnapössun um kvöldið
Við vorum að plana Lundar og Flensburgarferð, stefnan tekin á byrjun júní og í þetta skiptið ætlum við að prófa að taka ferju niður til Danmerkur og keyra þaðan til Flens og svo þaðan til Lundar. Það verður alveg ótrúlega gaman að fara aftur í heimsókn. Hlakka bara strax til
Svo skellti ég saman video-i af krökkunum taka fyrstu skrefin…versi gú
Hér er mikið að gerast og eru Hlini Snær og Karítas Ísold farin að ganga, Birkir Smári er enn dálítið að spara sporin sín. Mamma og Pabbir eru hjá okkur í heimsókn, alveg frábært að fá þau gömlu til okkar. Það er svo notalegt að sjá pabba gamla sofandi í nánast öllum stólum,sófum og stellingum og hrjótandi eins og herforingi.
En hvað um það þá er hér búið að snjóa villt og galið, snjómokstur er tíður hér á bæ. Og nú er spurning um að fara að príla upp á þak og losa snjó af þakinu, það er svo svakalega mikið upp á þaki og nágrannar okkar eru byrjaðir að losa af þökunum.
En gleðifréttir…….Krakkarnir eru komnir með inn á glænýjum leikskóla frá 1.ágúst. Júhú, svakalega er mér létt! Líka skemmtilegt nafnið á leikskólanum……Hornienga Barnehage! Af nafninu að dæma hlítur þetta að vera leikskóli fyrir fjölbura !
Svo er ég búin að skella inn myndum frá janúar, ekkert svakalega mikið af myndum en ég bæti það upp með myndbandi af krökkunum að ganga. Skelli því inn fljótlega.
Jæja kveð í bili þarf að fara að sinna mömmu og pabba.
Skellti saman video-i af krökkunum borða, hressandi subbuskapur! Hér verður að skúra á hverju kvöldi.
Annars er bara lífið þokkalegt, stutt í að mamma og pabbi koma í heimsókn. Mamman og Pabbin búin að eiga afmæli og auðvitað Usha aupair líka, maður tekur ekki inn aupair nema að hún sé vatnsberi. ég fékk gönguskíði frá Bigga og Biggi fékk minoHD frá mér…sem er snilld.
Svo kíktu Örn og Andri í heimsókn til okkar, gaman að fá heimsóknir. Sérstaklega þegar að gestirnir koma með góðgæti frá Íslandi
Ég skelli síðan inn myndum af krökkunum fljótlega.
En allavegana hér kemur myndbandið…..
Jæja héðan úr vetrarríkinu er ekkert annað að frétta en snjór og meiri snjór. Þegar ég vaknaði í morgun beið mín heil innkeyrsla sem var með 40 cm jafnföllnum snjó, þetta þarf náttúrulega að moka! Kallinn í vinnunni og ég heima með börnin, ekkert annað að gera en að taka krakkana út í snjóinn og moka, og vel af því.
Ég bakaði lummur í fyrsta skipti í gær úr hrísgrjónagraut, tókst bara svona líka vel og krakkarnir að sjálfsögðu brjálaðir í lummurnar.
Annars er það helst í fréttum að við erum að vinna í að gera umsókn fyrir krakkana á leikskóla, umsóknarfrestur fyrir veturinn 2009-2010 rennur út 1.feb. Þannig að þetta þarf að vera klárt fyrir þann tíma. Ef þau fá neitun þá veit ég hreinlega ekki hvað við gerum af okkur. Það er líklegast ekki séns að sama dagmamman sé með 3 laus pláss og ekki fer ég að deila þeim út um hvippinn og hvappinn. Krossleggjum fingur í þetta sinn að við fáum inn.
Hér er svo mynd af krökkunum frá því í dag í snjónum