Archive for the 'Þríburarnir' Category


Myndir

Wednesday, April 15th, 2009

Litla músin mín hún Karítas Ísold

Héðan úr veikindadal er allt bærilegt að frétta. Allir eru reyndar með hálsbólgu og kvef og foreldrarnir líka ;(
Páskarnir voru svakalega fínir með fullt af góðum mat og gestum og að ógleymdum páskaeggjum frá íslandi, guðdómlegt! Húsbóndinn fór í öll eggin á bænum þar sem að hans egg var ekki nógu stórt fyrir hann (Egg nr. 5 frá Nóa), mér og kolla til mikillar gleði.
En guði sé lof er snjórinn að fara og vorið að koma, pallurinn minn er að vera snjólaus þannig að nú er bara að draga fram sólarvörnina og bíða eftir blíðunni.
Ég hafði það af að setja inn myndir og hér koma þær, þannig að nú er bara eftir að setja saman eitthvað myndband af krökkunum og þá er ég bara nokkuð góð.

Annars fer ég að fara kíkja eftir vinnum fljótlega, eða þegar krakkarnir fara á leikskóla þá ætti ég að hafa tíma til að update-a CV og finna mér eitthvað skemmtilegt að gera :)

Kveð að sinni…….adios amigos


Líf og fjör

Monday, January 12th, 2009

Á þessum bæ er líf og fjör, krakkarnir eru sprækir eins og vanalega og alltaf mikið að gera á stóru heimili. Gísli Bergmann kom í mat til okkar í gær þar sem hann er nýfluttur til noregs. Fínasta kvöldstund.
Við vorum að byrja á því að láta krakkana sofa bara einn blund á dag í staðin fyrir 2 og eru seinnipartarnir og kvöldin dálítið erfið fyrir þessi skinn. En þau verða fljót að jafna sig á því eins og öðru, annað eins hafa þau gengið í gegnum.
En svona til að gleðja ykkur á nýju ári þá smellti ég inn tveimur myndböndum af krökkunum í staðin fyrir myndum, þannig að þið getið séð þau aðeins meira “live” :)


Jólatónleikar ?????

Sunday, November 30th, 2008

Já ég var búin að plana að fara á jólatónleika í dag hjá íslendingafélaginu og kirkjunni í dag, þar sem að það er fyrsti í aðventu og þiggja svo aðventukaffi að loknum tónleikum ;)  En nú er komin upp sú staða að við förum sennilega ekkert, ég sem hlakkaði svo til, sem sýnir sennilega bara hversu tilbreytingalaust líf mitt er!  En sem sagt Birkir Smári var með rúmar 39°C í gær og með 7 kommur í morgun.  Þessi vika er búin að vera ansi skemmtileg hjá krökkunum.  Karítas Ísold byrjaði í lok vikunnar að æla, út um allt.  Ekki alveg uppáhaldið og kveið ég mest fyrir að sjá hvenær þetta færi hringinn.  Hringinn hefur þetta enn ekki farið en nú virðist Birkir Smári vera komin með hálsbólgu, sem pabbinn kom með inn á heimilið!  Karítas er með þvílíka hornös þessa dagana, sætt að sjá taumana ná alveg niður að vörum ;)

En í viku erum við búin að láta þau sofna sjálf upp í rúmunum sínum, við vorum búin að venja þau á að rugga þeim bara í svefn, EKKI SNIÐUGT.  Þannig að þessi vika er búin að vera sennilega erfiðari fyrir foreldrana en þau.  Það er bara hrikalegt að hlusta á þau gráta úr sér lungun fyrstu dagana.  Fyrst voru þau að gráta í 2 tíma og svo t.d. í gær var eiginlega ekkert grátið, kannski 5 mín, en þau eru náttúrulega ekki að sofna svo fljótt.  Það er bara verið að leika sér í rúminu, klappa saman höndunum og svona allskonar leikfimisæfingar sem eru bráðnauðsynlegar fyrir svefninn. 


Fruss

Tuesday, November 11th, 2008

já það er ekki laust við það að maður þurfi að hafa fataskipti eftir hverja einustu máltíð á þessum bæ.  Hér er frussað óspart og er Hlini Snær duglegastur í þeim efnum og hlær svo svakalega þegar matarsletturnar frussast um allt að maður á bara erfitt að halda andliti fyrir framan hann, enda þá allur orðinn út í matarslettum!  Og yfirleitt er svona “beljueffekt” á þessu, þegar einn byrjar þá byrja allir, frekar skemmtilegt allt saman.  En hvað um það, mamman gefst sko ekki upp segjir að þetta meigi ekki og heldur ótrauð áfram að moka upp í þau.

Annars bakaði ég góðan skammt af norskum skólabollum í fyrradag sem að Karítas Ísold er gjörsamlega sjúk í.  Hún elti mann um allt “nammi namm” og heimtar meira.  Pabbinn á heimilinu er ekki minna glaður í bollurnar.  Talandi um bakstur þá fer bráðlega bara að líða að Sörubakstri, hugsa að ég þurfi að baka vel af þeim núna enda verður fullt hús hér um jólin!   

Amma Brynja og afi Jómbi verða hér ásamt Kolla og Önnu, það hrikalega gaman, ekki laust við að það sé að byrja bara tilhlökkun til jólanna :)  

Krakkarnir eru orðin svakalega dugleg í sundinu og erum við búin að skrá þau á framhaldsnámskeið eftir jól.  Þar sem að Jörgen frændi er svo góður við okkur að nenna að koma með okkur áfram :) 

Jæja þetta er nóg í bili………Heisan


Krakkarnir

Saturday, November 8th, 2008

Já þessi færsla verður þá tileinkuð krökkunum, þar sem að ég er búin að smella inn myndum frá september og Október mánuði.

Karitas með tennurnar

Karítas Ísold hlítur verðlaun þessa viknuna, þar sem hún er byrjuð að skemmileggja mest.  Hún er byrjuð að skreyta borðin hjá okkur með tönnunum sem er mjög spennandi.  Á tímabili var hún bara eins og naggrís út um allt, það mátti ekki líta af henni.  En það nýjasta var að Pabbi hennar þurfti að pissa og rétti henni símann sinn á meðan til að leika með.  Nema hvað henni fannst hann ekki meira spennandi en það að hann fór ofaní klósettið meðan pabbinn sprændi í það, hressandi ekki satt! 

En annars eru allir bara hressir og kátir, Karítas Ísold labbar meðfram öllu en strákarnir skríða bara á milli og standa bara aftur upp.  Hér er voða mikið stuð stuð á daginn.  Þau eru enn að taka 2 lúra á daginn, frá 9 - 11 og svo frá 13 - 15.

Þau fóru í 10 mánaða skoðun fyrir tæpum mánuði(16.10) og staðan var þá eftirfarandi

  • Hlini Snær 9.135 kg og 72 cm, höfuðummál 46,3 cm
  • Birkir Smári 8.975 kg og 71,5 cm, höfuðummál  46 cm
  • Karítas Ísold 8.000 kg og 67 cm, höfuðummál 43,6 cm

Annars eru þau byrjuð að fá fisk sem að við stöppum samviskusamlega ofaní þau, það er dálítið síðan þau byrjuðu að borða kjöt.

Heyrumst, lofa að blogga oftar núna :)


Skrítnir tímar

Wednesday, October 15th, 2008

Já það er ekki laust við að það séu skrítnir tímar núna, allt í upplausn heima og ég veit ekki hvort ég hef vinnu í nýjum banka.  Ég tilheyri kaupþingi í Noregi og satt best að segja býst ég við uppsögn.  Þar sem að ég vann þar í 1 mánuð í fyrra og þá bara fyrir Ísland þannig að þegar að starfsmannastjórinn í Noregi fer að velta fyrir sér hverjum hann á að halda og hverjum hann á að sleppa þá hugsa ég að ég sé ofarlega á sleppa listanum.  En ég er að vona að ég haldi þá mínum réttindum, þar að segja að það verði ekki hægt að segja mér upp í fæðingarorlofi!  og að ég haldi þá launum til Maí á næsta ári.  En þetta kemur allt í ljós á næstu dögum, hef enn ekki náð sambandi við starfsmannastjórann hér í Noregi.

En að einhverju öðru :)  Mamma og Pabbi eru að koma í heimsókn og verða í 1 viku, þar sem að mamma er búin að selja fyrirtækið sitt þá verður hún kannski bara tíður gestur hingað, maður veit aldrei.

Krakkarnir eru að fara í 10 mánaða skoðun á morgun, og það verður fróðlegt að sjá hvað þau eru orðin stór.  Síðustu helgi byrjaði Birkir Smári að skríða eins og herforingi og helgina þar áður var það Hlini Snær.  Þannig að núna eru allir komnir á flakk og byrjaðir að skoða í skúffur og annað slíkt, ferlega gaman.   

Jæja ég læt ykkur vita þegar ég veit eitthvað meira um framhaldið…….kveð að sinni 


Krakkarnir að verða 9 mánaða

Thursday, September 18th, 2008

Jæja tíminn flýgur og krakkarnir eru að verða 9 mánaða núna á laugardaginn, magnað hvað þetta er búið að vera fljótt að líða.  Héðan er allt fínt að frétta, Karítas Ísold er farin að stranda upp við allt og skríða eins og herforingi um öll gólf.  Við máttum lækka rúmin þeirra allra þar sem að hún var farin að vera standandi þegar við komum inn í herbergið.  Strákarnir eru alltaf í einhverjum kíkjuleikjum svaka stuð, kíkja hér kíkja þar og allir hlæja.

Allavegana ætlaði bara að láta vita af því að ég er búin að henda inn myndum frá ágúst mánuði


Au Pair

Wednesday, September 10th, 2008

Heimsóknartíminn er líðinn, við erum búin að vera með ágætis heimsóknarhrinu hjá okkur og hefur það bara verið gaman.  Amma Brynja og Jómbi afi voru hjá okkur í tæpar 3 vikur það var notalegt.  Síðan strax í kjölfarið kom Teddi og Guðbjörg til okkar frá Lundi, ferlega gaman og fórum við á túristastaði með þeim, tíndum ávexti af trjám og létum fara vel um okkur.  Þar sem að við erum bara orðin 5 manna fjölskylda aftur þá var ekki seinna en vænna að skella sér á Au pair stúlku, hún heitir Anusha og er 30 ára frá Sri Lanka.  Hún er alveg frábær með krakkana, klár og skemmtileg stelpa sem er síbrosandi.  Biggi byrjaði að vinna 1.sept þannig að við urðum að fá einhvern til að hjálpa mér með krakkana. 

Af okkur er annars allt gott að frétta.  Strákarnir eru enn í afturá bak gír en Karítas Ísold fer áfram eins og herforingi.  Hér eru allir farnir að sitja og strákarnir skemmta systur sinni með því að klappa saman höndunum.  Birkir Smári er að fá 2 neðri tennur, enda slefar hann ágætlega með því, hann er líka farin að kalla MAMMA!  Strákurinn að bræða móður hjartað :)  Hlini er búin að vera ansi slæmur af þurrki í húðinni í 2 vikur og ætla ég að fara með hann til læknis í fyrramálið, læknirinn sem er heimafyrir er sjálfur sjúkur upp í rúmi núna.  Hann er með ljótan hósta, hita og hálsbólgu eða það sem að sumir myndu kalla það “Man cold“.

Biggi er núna á fullu að reyna að finna lítin bíl til að druslast í vinnuna á og haldiði ekki að hann hafi farið og prufukeyrt rafbíl í gær!  Hefði viljað sjá það.  Engvir gírar eða hjóð bara petalar og svo snír hann víst við á punktinum liggur við. 

Ég er síðan að vinna í því að koma myndum inn, klára það einhverntíman í vikunni. Jæja ég er farin upp í rúm að hitta lazarus.  

  


8 mánaða

Monday, August 18th, 2008

Krakkarnir eru alveg að verða 8 mánaða og í tilefni af því fóru þau í skoðun upp á heilsugæslu.  Eins og ávallt komu þau glymrandi vel út.

  • Hlini Snær 8.200 kg og 70 cm
  • Birkir Smári 8.300 kg og 70 cm
  • Karítas Ísold 7.450 kg og 65 cm

Karítas Ísold tók sem sagt stökk inn í kúrfuna, hún hafði áður bara dansað á neðstu línunni en núna er hún komin inn í kúrfuna, litli skæruliðinn!

Hér er margt að gerast og bíðum við spennt eftir að Karítas Ísold byrji að skríða áfram, hún gerir öfugt V með líkamanum, stendur á tám og fer á 4 og juggar sér þar fram og aftur.  Hún settist meira að segja sjálf út á miðju gólfi um daginn.  Þá var hún búin að íta sér út á mitt gólfið og sat þar eins og prímadonna.  Strákarnir eru aðeins á eftir systur sinni í þessu en þeir eru líka að reyna að fara áfram.

Mikill sorgardagur var í dag, pelinn var tekinn af þeim.  Nú fá þau bara að drekka úr stútkönnum…….Hér er sem sagt búið að vera grátur og gnýstan tanna í dag (eða a.m.k. hjá Karítas, strákarnir enn tannlausir).  En annars eru krakkarnir voðalega glöð og kát og sérstaklega ef þau fá ávöxt á fæðunetið sitt.  Hlini Snær verður vitlaus þegar ég tek það af honum, orgar eins og honum hafi ekki verið gefið að borða í fleiri sólarhringa.  Svo er líka voða sport að lemja því í borðið….aðeins að búa til hávaða og skemma borðið hennar mömmu :)

Birkir Smári að borða

Hlini Snær að borða

Á morgun er svo stefnan tekin á Osló nú á að sína Jómba og Brynju höfuðborgina.  Ætli það verði ekki hresst með krakkana organdi á stútkönnurnar sínar.

Annars voru Afi Guggi og amma Mæja hérna í byrjun ágúst og höfðu svakalega gaman af og við líka.  Krakkarnir fengu líka svo fína 66°N galla frá þeim sem þau eru byrjuð að nota, veðrið hefur ekki verið upp á sitt besta.

Ég byrjaði svo að æfa í dag, það verður fyndið að sjá þegar ég fer að fara með þríburana í pössun í ræktinni :)  En æfingastöðin mín er í Sandvika Storsenter þannig að það er ekki langt að fara og svaka fín stöð svona í WC klassa.  Tók þríhöfða og bak í dag….spurning hvernig ég verð af sperrum á morgun.

Já nærri búin að gleyma því, við erum á fullu að leita okkur að au pair (því miður), það er ekkert annað í stöðunni.  Erum að skoða stelpur frá Thai og Philipino, þær eru svo duglegar og ég held að þær verði ekki mikið í því að hanga yfir okkur á kvöldin.  Biggi byrjar að vinna 1.sept og þá þurfum við fljótlega að fá einhverja stelpu því frá 1.sept verð ég annars ein með krakkana!!!!!

 Jæja ég ætla að skella mér í bólið enda allir löngu farnir þangað.  Osló kallar snemma í fyrramálið! 


Hitabylgja og kvef

Friday, July 4th, 2008

Þvílíkur og annar eins hiti, hér var slegið hitamet í sólinni í dag.  Mælirinn sýndi 47 °C sólarmegin, já og krakkarnir voru hressir með það eða ekki!  Þau komu rennsveitt úr vagninum þó þau hefðu ekki verið í neinu nema bleium.  Hér inni er algjör molla og sprangar hsúsbóndinn um ber að ofan, ég hef samt hamið mig í þeim efnum.

Agnes og krakkarnir eru núna upp í sumarbústað með Gumma og Åse og verða fram á sunnudag.  Ætlum við að hitta þau í smyglferð í Svíþjóð á morgun, veitir ekki af að fylla frystikistuna þegar mikið er af gestum. 

Annars eru krakkarnir alveg yndislegir, Karítas Ísold rúllar sér um og er minnst á leikteppinu.  Hún bakkaði meira að segja um daginn á parketinu.  Birkir Smári er byrjaður að að velta sér núna, hendinn hans er ekki lengur hindrun!  Hlini Snær er aftur á móti sæll á bakinu og hliðinni. 

Fyrsta kvefið er komið í hús, Karítas Ísold er þrælstífluð.  Það byrjaði reyndar bara í kvöld…….spurning hvað það mun taka langan tíma að ganga á línuna.

Jæja það er kominn háttatími enda verður keyrt til Svíþjóðar eftir fyrstu gjöf í fyrramálið.