Archive for the 'Mæðraskoðun' Category


Staðan fer hallandi

Thursday, December 13th, 2007

Fór í morgun fastandi í blóðprufur eins og ég hafði verið beðin um að gera.  Og svo klukkan 11 í morgun átti ég tíma hjá Letting, hún var ekki alveg sátt við niðurstöðurnar úr þessum blóðprufum.  Lifrargildin hjá mér eru komin upp í 500 en þegar ekkert er að þá eiga þau að vera undir 40…..Takk fyrir, þannig að ég á að fara í meiri blóðprufur á laugardaginn ferlega skemmtilegt!  Og svo vill hún láta óma gallblöðruna og lifrina hjá mér, ath hvort að ég sé komin með gallsteina eða eitthvað.  Allavegana þetta lítur ekki nógu vel út þannig að það á að leggja mig inn á mánudaginn kemur.  Ég varð eitthvað rosalega fúl með að það ætti að leggja mig einum degi fyrr, en það skiptir ekki máli einum degi til eða frá.  Ef þetta er eitthvað sem ég þarf að vera á spítala út af þá er best að gera það.

Annars voru 3burarnir í góðu formi, sprækir og fínir og spörkuðu látlaust.  Mældust 2000gr svo er bara að sjá hvað þeir eru nákvæmlega á miðvikudaginn kemur.  Hún var ekkert óhress með stærðina á þeim og sagði að þeir væru bara í fínni stærð fyrir 3bura.  Vona samt að þeir nái einni mörk í viðbót fyrir keisarann þannig að þeir verði 9 merkur, það væri súper!

Jæja ég er farin að leggja mig aðeins er búin að vera á rápi með mömmu og pabba í dag.

Adios í bili


Sprautur og fleiri sprautur

Tuesday, December 11th, 2007

Jæja þá er ég búin að vera að fara fram og til baka á spítalann í blóðprufur síðan á föstudaginn og hendurnar á mér eru orðnar að gatasigti.  Ég byrjaði að fá mikinn kláða út um allt á miðvikudaginn í síðustu viku og er hann búinn að vera alveg síðan.   Þeir báðu mig um að koma í blóðprufu sem ég og gerði og beið stillt í 3 klukkutíma eftir niðurstöðum, þegar þær voru komnar þá fóru þau að væla um að ég væri ekki fastandi þannig að það væri ekki alveg að marka gallsýru gildin sem ég fékk.  Þannig að þau báðu mig um að koma aftur laugardagsmorgun og þá fastandi, olræt ekkert mál ég gerði það og þegar ég hringdi eftir niðurstöðum var mér sagt að blóðprufan hefði verið tekin í vitlaust glas þannig að hún var ónýt.  Já já hressandi !  Ég mátti því fara aftur fastandi í gær á spítalann og taka nýjar prufur og beið eftir þeim í 4 tíma án þess að það kæmi niðurstaða úr þeim.   Og var þá send heim eftir að hafa beðið í 4 tíma í hörðum tréstól með smá sessu, hrikalega þægilegt að sitja á því.  En allavegana niðurstaða kom að lokum og ég er sem sagt með hækkun á lifrarprófum sem skýrir hressandi hægðir, líkaminn tekur ekki upp fituna í matnum (verður ekki farið nánar út í það hér) og svo hækkun á gallsýru sem skýrir kláðann.  En það á ekkert að gera nema að þetta versni eitthvað, svo verða líka teknar nýjar prufur af mér á fimmtudaginn þegar ég fer í skoðun og þá verður þetta metið betur

Þannig að lífið er ansi skemmtilegt þessa dagana, kláði…..líf og fjör!    

Og bara ein jólagjöf eftir sem ég klára á eftir!


Súper skoðun

Wednesday, December 5th, 2007

Jæja þá fékk ég leyfi til að vera heima eina vikuna í viðbót, eða svo lengi sem að ekkert gerist :)  Einhver nýr læknir skoðaði mig í dag þar sem að Dr.Letting okkar er í fríi mikið í desember.  Hann lofsamaði leghálsinn minn og fannst ótrúlegt hversu vel hann héldi sér, hann sagði þú ert með ótrúlegan legháls! Það er ekkert örðuvísi krakkar mínir, hann er ótrúlegur.  Þá er það komið á hreint hvað mamma og pabbi vönduðu sig mest við þegar þau voru að búa mig til, ég þarf ekkert að velta mér meira upp úr því.  Svo er ansi hressandi að legbotninn er orðinn 49 cm, og fyrir þá sem vita ekkert um legbotnahæð þýðir það með öðrum orðum að ég sé búin að ganga með í 49 vikur!  Hæð legbotns og lengd meðgögnu fylgist að.  Ekki skrítið að húðin sé búin að fá nóg af þessu togi.

En já svo er maður bara “celeb” í dag, allavegana miðað þið þessa grein í morgunblaðinu.

Jæja ég er farin að klára þessi jólakort……góðar stundir


Jólasnjór

Wednesday, November 28th, 2007

Jæja í dag snjóaði aldeilis jólasnjó, ekki mikið samt en samt nægilega miklu til að koma mér í jólaskap.  Enda ágætt að vera í smá jólafílingi núna þar sem að jólin verða eitthvað öðruvísi þetta árið.

Annars fór ég í skoðun í dag og allt leit vel út, þríbbarnir braggast vel og hafa nóg af öllu.  Þannig að mér var sleppt heim enn eina vikuna :)  Við Biggi vorum að velta fyrir okkur ef ekkert væri að krökkunum og þeir væru í góðum málum þegar þeir kæmu í heiminn hvort við fengjum að fara heim fyrir jól.  Einfalt svar frá lækninum okkar NEI!  Þannig að við verðum á aðfangadag og jóladag og aðra skemmtilega daga upp á spítala þessi jól.  En það eru líkur á að þau komi heim fyrir áramót…við höldum bara í þá von.

En mér var tjáð að ég ætti kannski eitthvað að draga úr jólagjafaleiðungrum og vera bara sem mest í rólegheitum.  En það eru nú svo sem ekki margir pakkar eftir, er að fara að senda heim kassa fullan af hrikalega skemmtilegum jólagjöfum.  Næst á dagskrá er að setjast niður og skrifa blessuðu jólakortin, það verður fínt maður bara skellir jólatónlist á og finnur jólafriðinn í sjálfum sér og þá flýtur rithöndin áfram.

Biðjum að heilsa í bili


Skoðun

Thursday, November 22nd, 2007

Allt gekk eins og í sögu í skoðunninni, eins og venjulega ;)  Það var reyndar annar læknir sem tók á móti mér en venjulega og hún var bara fín.  Ég fer nú bara að halda að leghásinn minn verði skráður í einhverjar sögubækur hjá þeim þau á spítalanum eru svo hrifin af hörkunni í honum að láta ekki bugast undan álaginu.  Blóðþrýstingur alltaf sá sami 110/70 það er greinilegt að ekkert hefur áhrif á hann og þvagið “englapiss” eins og uppáhaldsljósan okkar sagði við mig á lansanum á sínum tíma.  Þannig að mér var leyft að fara heim…..og taka það rólega eins og venjulega ;)

Í dag eru náttúrulega nokkur verkefni sem þarf að leysa eins og alla aðra daga. 

  • Ég ætla að finna einhver náttborð inn í svefnherbergi hjá okkur, bigga finnst ekki gaman að hafa bækur og dót á gólfinu lengur.
  • Ég þarf að kaupa hleðslutæki fyrir myndavélina okkar, það hefur eitthvað týnst í flutningunum.  Annars verður ekkert hægt að taka fleiri bumbumyndir né myndir yfir höfuð.
  • Kaupa eitthvað af fötum, mér var tjáð að maður þurfi að eiga svona eins og 4 daga af alklæðnaði á krakka í það minnsta, og við eigum náttúrulega von á 3 þannig að það eru 12 dagar nema að ég ætli að vera föst inn í þvottahúsi.

Fór í eina barnafatabúð í gær og vá hvað fötin á litla krakka voru ljót, þau voru öll úr svona mjúku flaueli eða hvað sem þetta var og svona bara hrikalega ljótt maður….átti ekki til orð!  Allt eitthvað svakalega bleikt eða ljósblátt, ekki alveg að gera sig.  Það var bara ekki séns að fá neitt í svona venjulegum litum eins og grænum, brúnum, bláum, dröppuðum, gráum eða nokkrum öðrum lit.  Held að ég nenni ekki að hafa krakkana mína í sykursætum litum alla daga, þannig að ég verð að halda leit minni áfram.  Annars er líka alltaf hægt að grípa í undratækið Netið!

Jæja ég er farin út í leiðangur með bumbuna út í loftið…….

p.s. Það var hvítt yfir öllu í morgun, fyrsti snjórinn var mættur á svæðið.  Fyrir utan skíðabrekkuna sem er búin að vera opinn í vikunni.


Sónar

Thursday, November 15th, 2007

Ég kom inn á stofu til dr.Saxa(man ekki hvað hann heitir) og hann byrjaði að sprauta gelinu á mallann til að skoða mig þá segir hann hér er mikið þvag……þarftu ekki að pissa?  Ég sem pissaði áður en ég lagði af stað að heiman ekki nema 30 mín síðan, ég segi jú jú en ekkert í spreng.  Með það sama mátti ég þurka gelið af mallanum og fara á klósettið til að hann gæti séð krakkarna almennilega.  Þríburarnir hafa það bara fínt, allir með jafnt legvatn og nóg að borða, allavegana voru þeir orðnir um 1600 gr en annar strákurinn er aðeins minni en ekkert til að tala um sagði læknirinn.  En hann vildi fá mig aftur í svona stóran sónar eftir 14 daga, ég passaði mig á að fá sónarinn á svipuðum tíma og hin skoðunin mín.  Þannig að ég sé ekki að keyra margar ferðir niður á spítala. 

Bumban er aðeins byrjuð að síga, fyndið þegar ég sit í stól þá hvílir maginn á mér á lærunum……..spes tilfinning!  Nú fyrst veit ég hvernig er að vera kall með harða STÓRA kúlu. 

Adios Amigos


Skoðun

Wednesday, November 14th, 2007

Jæja þá er ég komin 30 vikur og 2 daga skv. norskum heimildum.  Allt gekk vel í skoðuninni og var ég spurð hvort ég hefði hvílt mig mikið í síðustu viku!  Frekar auðvelt svar: UUUUuuuuuuu……..Nei.  Þetta leit svona líka vel út að þeir eru bara undrandi á þessu öllu saman.  Svo var náttúrulega byrjað að tala um innlögn, þeir eru bara helteknir af þessum innlögnum sínum!  Ég er ekkert á leiðinni neitt inn á spítala, við erum alveg að tala um 5 vikur þangað til krakkarnir eiga að koma og ég er ekkert að fara að leggjast inn á spítala í fleiri vikur þegar ekkert er að mér, við sjáum hvað setur.

Svo var mér náttúrulega gefinn annar tími á morgun í stóran sónar, það gengur auðvitað ekki upp að gera þetta á sama tíma.  Þetta er bara full vinna fyrir mig að fara til lækna.  En allavegana það á að tékka á blóðflæði , legvatni og stærðinni á krílunum á morgun.  Athuga hvort að eineggja strákarnir séu að stela blóði frá hvorum öðrum, hvort að annar sé að taka of mikið blóð til sín og hinn fái minna.  Við skulum vona að þeir séu bara eins og mamma sín, ekkert frekir ;) og séu bara sáttir með sitt. 

En allavegana fór af spítalanum í dag með láði, ekkert að mér og krakkarnir í góðum gír.