Archive for November, 2007


We wish you a merry christmas !

Friday, November 30th, 2007

Jamm hér sit ég heima og skrifa jólakort og hlusta á dýrindis jólatónlist.  Ekki er verra að veðrið í dag er alveg búið að vera í takt, hér er búið að snjóa í allan dag eða svona meiri partinn.  Það eru samt ekkert komnir neinir skaflar, bara svona smá snjóað.  Það er svo langt síðan ég hef skrifað kort, sé það bara betur núna að fréttabréfin mín undanfarin ár eru bara snilld.  Það er bókað mál að þeim verður haldið áfram á næsta ári.

Annars er búið að skipuleggja leiðangur hjá mér og Bigga á morgun, þurfum að versla eins og eitt stykki rúm inn í gestaherbergið þannig að mamma og pabbi sem koma eftir 1 og hálfa viku geti nú sofið fallega hjá okkur.  Það verður nú fínt að fá þau í heimsókn til okkar :)

Jæja Popp og Julebrus í kvöld fyrir framan imbann…….


Mogginn

Thursday, November 29th, 2007

Já eitthvað hefur þessi frjósemisstyttu saga hvissast út, því nú vill mogginn spyrja okkur einhverjar spurningar.  Ég var nefnilega að tala við Níní um daginn og þá hafði hún fengið þessa fyrirspurn og átti að tékka á okkur.  Spurning hvenær við komum saman í séð og heyrt með myndum af krökkunum með fyrirsögninni……… Frjósemisstytta sem virkar! eða kannski……Ótrúlegt vinapar eignast þríbura.  Þetta er náttúrulega bara fyndin saga.

Annars var ég að hvíla mig í dag……eða ekki!  Var í allan dag að skoða í búðir jólagjafir og svo að finna bókaskáp inn í stofu til okkar.  Keypti ekkert en fann nokkra hluti til að gefa en er komin í smá strand með bókahilluna, fann að vísu eina í dag sem kostaði ekki nema 65.000 NOK hahaha……sennilegast aðeins of dýrt fyrir okkur!  Þannig að ég verð að halda leit minni áfram.

Svo verð ég að koma einu á framfæri, ég elska Julebrus…..mmmmmm……ekkert smá gott.  Við erum að tala um gos sem er bleikt á litinn og svo hrikalega gott á bragðið, minnir mig á þegar ég var lítil og var hjá Gumma bróðir um jólin.  Þá var þetta gosið sem við krakkarnir fengum, keypti mér eina kippu af því í dag.  Spurning hvort að ég geti farið í keppni vð konginn sjálfann??

Jæja ég er farin í háttinn. Ætla að vera heima á morgun, halda áfram að skrifa kortin og svona

Kveðja Ása á JuleBrus bleiku skýi


Jólasnjór

Wednesday, November 28th, 2007

Jæja í dag snjóaði aldeilis jólasnjó, ekki mikið samt en samt nægilega miklu til að koma mér í jólaskap.  Enda ágætt að vera í smá jólafílingi núna þar sem að jólin verða eitthvað öðruvísi þetta árið.

Annars fór ég í skoðun í dag og allt leit vel út, þríbbarnir braggast vel og hafa nóg af öllu.  Þannig að mér var sleppt heim enn eina vikuna :)  Við Biggi vorum að velta fyrir okkur ef ekkert væri að krökkunum og þeir væru í góðum málum þegar þeir kæmu í heiminn hvort við fengjum að fara heim fyrir jól.  Einfalt svar frá lækninum okkar NEI!  Þannig að við verðum á aðfangadag og jóladag og aðra skemmtilega daga upp á spítala þessi jól.  En það eru líkur á að þau komi heim fyrir áramót…við höldum bara í þá von.

En mér var tjáð að ég ætti kannski eitthvað að draga úr jólagjafaleiðungrum og vera bara sem mest í rólegheitum.  En það eru nú svo sem ekki margir pakkar eftir, er að fara að senda heim kassa fullan af hrikalega skemmtilegum jólagjöfum.  Næst á dagskrá er að setjast niður og skrifa blessuðu jólakortin, það verður fínt maður bara skellir jólatónlist á og finnur jólafriðinn í sjálfum sér og þá flýtur rithöndin áfram.

Biðjum að heilsa í bili


Jólagjafir

Friday, November 23rd, 2007

Í dag var ég harðákveðin í því að fara í mollið og kaupa flest allar jólagjafirnar, ég var mætt um hádegisbilið galvösk tilbúin í jólagjafaleiðangur.  Eftir 4 klst í mollinu var ég með 1 poka í hendinni, 1 poka sem innihélt 1 jólagjöf !  Held að þetta sé versta frammistaða mín í jólagjafaleiðangri.  En sem betur fer er ég einhverju nær með nokkra pakka þannig að það verður taka 2 á morgun.  Biggi er á vakt um helgina þannig að ég keyri hann í vinnunna kl 9 og svo bíð ég bra spennt eftir að búðirnar opni. 

Annars vorum við að fá jólakortin frá Chris í dag, þannig að þegar dauður tími kemur hjá mér get ég farið að skrifa og skrifa.  Enda betra að vera búin að því áður en ég verð lögð inn á spítalann.  Því miður verðum við ekki með fréttablaðið okkar í ár þar sem að þessi jól verða hálf óhefðbundin.  En ég var nú bara farin að hafa gaman af fréttablaðinu okkar, kannski ég geti bara sett link inn á það hér á vefnum við tækifæri, þar að segja ef ég næ að gera það.

Svo keypti ég föt á krakkana í dag til að fara heim af spítalanum, ekkert smá flott.

Svo var ég búin að plana sörubakstur á sunnudaginn, ekki veitir af því að klára það.  Ætli ég og Móri(ímyndaði vinur minn)  verðum ekki bara saman í bakstrinum, allavegana verður Biggi á vakt og þá eru vinir mínir upptaldir hér í Noregi ;)

Ása í jólapakkastuði


Skoðun

Thursday, November 22nd, 2007

Allt gekk eins og í sögu í skoðunninni, eins og venjulega ;)  Það var reyndar annar læknir sem tók á móti mér en venjulega og hún var bara fín.  Ég fer nú bara að halda að leghásinn minn verði skráður í einhverjar sögubækur hjá þeim þau á spítalanum eru svo hrifin af hörkunni í honum að láta ekki bugast undan álaginu.  Blóðþrýstingur alltaf sá sami 110/70 það er greinilegt að ekkert hefur áhrif á hann og þvagið “englapiss” eins og uppáhaldsljósan okkar sagði við mig á lansanum á sínum tíma.  Þannig að mér var leyft að fara heim…..og taka það rólega eins og venjulega ;)

Í dag eru náttúrulega nokkur verkefni sem þarf að leysa eins og alla aðra daga. 

  • Ég ætla að finna einhver náttborð inn í svefnherbergi hjá okkur, bigga finnst ekki gaman að hafa bækur og dót á gólfinu lengur.
  • Ég þarf að kaupa hleðslutæki fyrir myndavélina okkar, það hefur eitthvað týnst í flutningunum.  Annars verður ekkert hægt að taka fleiri bumbumyndir né myndir yfir höfuð.
  • Kaupa eitthvað af fötum, mér var tjáð að maður þurfi að eiga svona eins og 4 daga af alklæðnaði á krakka í það minnsta, og við eigum náttúrulega von á 3 þannig að það eru 12 dagar nema að ég ætli að vera föst inn í þvottahúsi.

Fór í eina barnafatabúð í gær og vá hvað fötin á litla krakka voru ljót, þau voru öll úr svona mjúku flaueli eða hvað sem þetta var og svona bara hrikalega ljótt maður….átti ekki til orð!  Allt eitthvað svakalega bleikt eða ljósblátt, ekki alveg að gera sig.  Það var bara ekki séns að fá neitt í svona venjulegum litum eins og grænum, brúnum, bláum, dröppuðum, gráum eða nokkrum öðrum lit.  Held að ég nenni ekki að hafa krakkana mína í sykursætum litum alla daga, þannig að ég verð að halda leit minni áfram.  Annars er líka alltaf hægt að grípa í undratækið Netið!

Jæja ég er farin út í leiðangur með bumbuna út í loftið…….

p.s. Það var hvítt yfir öllu í morgun, fyrsti snjórinn var mættur á svæðið.  Fyrir utan skíðabrekkuna sem er búin að vera opinn í vikunni.


Vöggur

Wednesday, November 21st, 2007

Í gær settum við Biggi upp allar vöggurnar sem við keyptum og uffffff……..herbergið er bara ótrúlegt með 3 vöggum inn í því.  Þetta er allt saman að verða raunverulegra!  Herbergið þeirra er ekki nema 8-10 fermetrar og það er gjörsamlega troðið með þessum vöggum….hahahaha.

Annars er ég að fara í mína vikulegu skoðun á eftir segi ykkur hvernig það gekk þegar ég kem heim.  Annars er burðurinn alveg að byrja að þyngjast núna, fyndið þegar ég stend upp og byrja að labba það er bara eins og ég sé gamalmenni.  Svo er ég að byrja að fá smá bjúg, er þrútin á höndunum, bólgnari á löppunum og aðeins í andliti.  Biggi segist samt ekki sjá neinn mun á mér og segir að ég sé bara fín…….hann er svo yndæll þessi elska.

Að endingu vil ég þakka fyrir stafsetninga leiðréttingarnar sem ég hef fengið, góð komment!  En ég mun samt ekki fara inn í gamlar færslur til að breyta y í i eða öfugt :)   Ég læt bara lesblindu mína njóta sín hér á síðunni, hún verður a.m.k. einhverstaðar að gera það !

Kveð að sinni


Helgin

Monday, November 19th, 2007

Fullt að gera hjá okkur um helgina.  Við versluðum eins og brjálæðingar í Svíþjóð, það var sko ekki bara vel tekið á því í barnabúðinni heldur líka í kjötbúðinni. 

Við byrjuðum náttúrulega á barnabúðinni og keyptum þar brjálæðislega mikið eða 2 stórar innkaupakerrur.  Þegar við löbbuðum síðan með þessar innkaupakerrur stútfullar út í bíl var ekkert smá glápt á okkur.  Það var líkara að við værum að versla fyrir eitthvað fyrirtæki/dagheimili heldur en einstakling. Og svo þegar fólkið var búið að glápa á kerrurnar sem Biggi og Gummi bróðir trilluðu á undan sér var síðan glápt á mig!  Þetta er bara rugl.  

Svo var farið í kjötbúðina og verslað eitthvað um 30 kg af kjöti inn á heimilið og það mest nautakjöt……jammí jammí, svakalega er gott að geta farið til Svíþjóðar og keypt svona ódýran mat.  Við erum samt bara með rétt botnfylli í frystikistunni okkar.

Í dag hef ég ekki gert neitt annað en að þvo barnaföt og strauja þau, örugglega eina skiptið sem ég get dundað mér við að strauja.  Hugsa að þegar ég verð komin með brjálæðingana þá hafi ég nú ekki tíma í annað en að þvo af þeim.  En allavegana hrikalega skemmtilegur dagur.  Svo til að toppa það var ég spurð í dag hvort ég ætlaði að nota taubleygjur!  Held ekki, skv. þríburamóður þá eru þetta ekki nema 700 bleygjur á mánuði…..spurning um að þvo 700 stk í mánuði með húsið angandi af skítalykt og tilheyrandi.  NEI TAKK EKKI FYRIR MIG.  


Legið í leti

Friday, November 16th, 2007

Vaknaði eldsnemma í morgun eða rétt rúmlega 6 með Bigga, fór upp smurði nesti fyrir strákinn eins og góðum húsmæðrum sæmir og fékk mér svo að borða.  Svo náði ég í tölvuna og fór með hana upp í rúm, eitthvað sifjaði mig yfir netinu þannig að ég sofnaði bara með tölvuna í fanginu…….alveg ekta NÖRD!

Þannig að nú er bara að fara að drífa sig á fætur, gera eitthvað hérna því á morgun förum við til Svíþjóðar.  Það væri kannski ekki slæmt að taka eins og 1-2 jólagjafir þar líka ;)

Gummi bróðir kláraði að setja upp ofnana hérna hjá okkur í gær þannig að þá fer allt að verða klappað og klárt.  Við eigum samt enn eftir að kaupa einn fataskáp, 3 gestarúm, náttborð inn til okkar, náttborðslampa, bókahillu og sjónvarpsskenk.  Ætli þetta verði ekki verkefni næstu viku eða vikur.  Þurfum samt að klára þetta fyrir desember.

Skelli síðan inn mynd á eftir einhverntímann…..

bæ í bili 


Lífið í Vøyenenga

Thursday, November 15th, 2007

Hér er nú aldeilis mikið fjör, skíðabrekkan er að verða full af snjó.  Ekki að það sé búið að snjóa svona mikið heldur eru snjóblásarar búnir að blása snjó í brekkuna í heila viku.  Þegar maður keyrir framhjá þá líður manni eins og það sé bara hávetur, en ætli ég verði ekki að bíða með skíðaferðir þangað til á næsta ári.

En hann er orðin ansi kaldur hérna, þegar ég keyrði Bigga í vinnuna í morgun þá sýndi mælirinn -6°C…….bbbbbrrrrrrr, eins gott að við erum búin að fá upp ofnana hjá okkur.

Ég og Biggi erum að vinna í jólagjafalistanum, þurfum að koma honum nokkurnveginn frá, held að Biggi sé alveg til í að sleppa við að kaupa sem mest af gjöfunum.  Þannig að við ætlum að fara í smá leiðangur eftir vinnu hjá honum í dag og ætli við förum ekki bara í uppáhaldið hans…….stæðsta mollið í Noregi sem er í 5 mín fjarlægð frá okkur ;)

Svo er Åse mágkona í Bergen að hitta krakkana sína þannig að Gummi bróðir er einn heima, ég bauð honum því í mat í kvöld, ætli ég eldi ekki bara fyrir hann júgúslaveskt gúllas sem er hrikalega gott.

Svo voru einhverjir að heimta nýja mynd inn, ég skal koma því í verk annað hvort í kvöld eða þá á morgun…..lofa því.  Jæja ég er farin að gera eitthvað af viti hérna heima hjá mér, búin að leggja mig í hádeginu og því þarf ég að fara að gera eitthvað annað en að hanga í tölvunni.

Bæjó! 


Sónar

Thursday, November 15th, 2007

Ég kom inn á stofu til dr.Saxa(man ekki hvað hann heitir) og hann byrjaði að sprauta gelinu á mallann til að skoða mig þá segir hann hér er mikið þvag……þarftu ekki að pissa?  Ég sem pissaði áður en ég lagði af stað að heiman ekki nema 30 mín síðan, ég segi jú jú en ekkert í spreng.  Með það sama mátti ég þurka gelið af mallanum og fara á klósettið til að hann gæti séð krakkarna almennilega.  Þríburarnir hafa það bara fínt, allir með jafnt legvatn og nóg að borða, allavegana voru þeir orðnir um 1600 gr en annar strákurinn er aðeins minni en ekkert til að tala um sagði læknirinn.  En hann vildi fá mig aftur í svona stóran sónar eftir 14 daga, ég passaði mig á að fá sónarinn á svipuðum tíma og hin skoðunin mín.  Þannig að ég sé ekki að keyra margar ferðir niður á spítala. 

Bumban er aðeins byrjuð að síga, fyndið þegar ég sit í stól þá hvílir maginn á mér á lærunum……..spes tilfinning!  Nú fyrst veit ég hvernig er að vera kall með harða STÓRA kúlu. 

Adios Amigos