Gullmolarnir
Wednesday, December 26th, 2007Hér hefur allt sinn vanagang, ég vakna um 06:00 á hverjum degi til að gefa gullmolunum brjóst og svo á þriggja tíma fresti eftir það. Síðasta gjöf sem ég tek þátt í er yfirleitt um miðnætti þannig að dagurinn snýst ekki um annað. Mjólka og borða og dotta inn á milli ef ég hef tíma í það.
Gjafirnar ganga misjafnlega stundum taka þau vel til sopans og stundum ekki, þá þarf að koma mat ofan í þau með sondu sem ég vonast alltaf til að þau fari að losna við. Sárt fyrir móðurhjartað að horfa á hjúkrunarfræðingana troða sondum ofan í mallakútinn þeirra þegar þau eru ekki nógu dugleg. Annars voru þau tekin af hitadýnunni í dag og öll sett í sama rúm, hrikalega er sætt að sjá þau öll svona saman í venjulegu rúmi. Nú er að sjá hvort þau standa sig ekki og haldi líkamshitanum stabílum.
Við fórum heim í afganga í dag, hrikalega er gott að hafa mömmu og pabba hérna til að stjana við okkur, þessi jól hefðu annars verið upp á spítala að öllu leyti.
Annars stefnum við á að taka myndir af þeim á næstu dögum og skella inn, leyfa ykkur að fylgjast með hvernig þau dafna og braggast.
Mér sýnist krakkarnir líkjast pabba sínum af því leyti að þau eru sybbinn meira og minna allan sólarhringinn
Jæja þá þurfum við að fara aftur á spítalann, næsta gjöf fer að byrja og ekki getur maður mætt of seint með búbbana.
Ása og Biggi í draumalandi