Amma og Afi farin
Wednesday, January 23rd, 2008Jæja þá er stórfjölskyldan orðin ein í fyrsta skipti ! Amma Brynja og Afi Jómbi voru að fara, hér sit ég ein heima með gríslingana sem eru sofandi upp í rúmi og vonandi vakna þau ekki fyrr en Biggi kemur heim aftur :) Annars eru þau svo voðalega góð.
Eivor hringdi í mig áðan og kemur til Oslo á föstudagskvöldið, þá mun kella kíkja í fjöruga heimilið og gista. Spurning um að hún byrji á að láta mjalta sig upp áður en hún kemur, það væri ekki slæmt að hafa eitt sett af búbbum í viðbót ! Það verður hrikalega gaman að sjá hana :)
Við Biggi erum búin að vera í 3 daga að semda fyrirspurnir, farandi hingað og þangað til að byðja um aðstoð. Það verður fróðlegt að sjá hvernig næstu dagar verða hjá okkur þar sem við verðum ekki með hjálp og hvernig við tæklum þetta…held að það sé málið að skriðtækla.
En það sem við erum búin að fá í gegn er ýmislegt
- Fríar bleiur til tveggja ára
- Mat þegar þau fara að borða fasta fæðu
- pela, snuð og einhver leikföng
- Aðstoð í 1 mánuð á daginn
En það sem við erum að reyna að fá í gegn er…
- Fá aðstoð á næturnar við næturgjafirnar
- Fá aðstoð á daginn í meira en mánuð helst í 1 ár
Að fá þetta í gegn er þvílík vinna, það er búið að senda okkur út og suður. Tala við þennan, tala við hinn og allir benda á einhvern annann. Svo þegar maður hittir á rétta fólkið þá erum við spurð hvort að við séum búin að spá í aupair eða að finna einhvern sjálf. En við erum ekki tilbúin að gefast upp strax, þetta á eftir að hafast hjá okkur
Annars setti ég myndir af krökkunum inn í þetta albúm um daginn þegar að þau voru 1 mánaða, fyrir þá sem að voru ekki búnir að sjá þær.