Archive for February, 2008


2ja Mánaða

Wednesday, February 27th, 2008

Jæja þá eru krakkarnir orðnir 2ja mánaða eða nánar tiltekið þann 20.feb  Ég var búin að tala um að skrifa hvað þau kunna og geta við hvert mánaðarafmæli og því ætla ég hér með að bæta á listann þeirra.  Það sem þau geta núna sem þau gátu ekki í síðasta mánuði er….

  • Brosa til manns þegar maður talar við þau
  • Eru farin að babbla eitthvað óljóst hjal
  • Eru byrjuð að æfa á mallanum, með misjöfnum árangri

Jamm ekki bættist mikið við listann þennan mánuðinn :)


Sjónvarp !!!

Tuesday, February 19th, 2008

Jæja þar kom að því allar stöðvarnar okkar eru dottnar út og við fengum miða heim sem sagði að kapal sjónvarpið hefði verið tekið úr sambandi.  Þegar við fluttum inn eru búnar að vera fullt af stöðvum í sjónvarpinu okkar sem venjan er að borga fyrir, við vorum náttúrulega ekkert að láta vita af þessu.  Né heldur vissum fyrir víst að við þyrftum að borga fyrir þessar stöðvar.  En sem sagt fólkið sem við keyptum húsið af er búið að vera að borga fyrir sjónvarpið okkar í allan þennan tíma eða heila 5 mánuði ;)  Ekki kvarta ég yfir því !  Nema að Biggi varð alveg vitlaus yfir þessu því Liverpool er að spila núna og hann gat ekkert séð, þannig að nú situr hann fyrir framan tölvuna niðri og horfir á leikinn í gegnum netið.

En við erum búin að fá okkur Kanal Digital en það er bara ekki komið upp, þurfum að bíða eitthvað eftir HD móttakara.  Biggi er alveg að fara á límingunum að vera ekki komin með fótboltan í HD!  Þannig að þangað til erum við sjónvarpslaus því það er ekki loftnet á húsinu okkar og sjónvarpið finnur engar stöðvar!

Krakkarnir hafa það fínt hjá mér og Evu á daginn og mér og Bigga á kvöldin og næturna.  Hrikalega er ég fegin að mamma og pabbi létu okkur fá gamla rúmið sitt sem er HUGE þar sem að við erum 5 í því allar nætur.  


Frú Eva hjálparhönd

Thursday, February 14th, 2008

Jámm þá erum við komin með aðstoð frá bænum.  Það kemur hér kona frá ca 8:30 til 15:30 og hjálpar mér með krakkana, það er ekkert smá fínt þar sem að Biggalingur er farinn að vinna.  Það þarf einhver að vinna fyrir heimilinu !  En Eva hjálpar mér við krakkana og aðstoðar við þvotta og svona.  Hún er fínasta kella.

Frá því að Biggi byrjaði að vinna hefur hann sofið inn í gestaherbergi til að fá svefnfrið en ég sef mínu væra í risa hjónarúmi fullu af börnum.  Þar sem að ég sef svo fast og vakna ekkert við krakkana ef þau eru í næsta herbergi þá brugðum við á það ráð að skella bara krökkunum upp í rúm síðustu gjöf fyrir svefninn og þar lúrum við til tæplega 6.  Spurning hvort að Biggi sé hættur að sofa í hjónarúminu og sé búinn að hertaka gestaherbergið.  Gaman fyrir gestina sem koma að fá plássið hans Bigga upp í hjónarúmi með mér ;)

En annars voru krakkarnir og ég að eignast litla frænku, Pétur frændi og Ellen voru að eignast aðra stúlku í gær.  Ofboðslega sæt lítil mús með lengstu neglur í heimi.

Jæja ég ætla að fara að undirbúa tasty burger handa bigga mínum……


Afmælisveisla

Sunday, February 10th, 2008

Jæja þá er sameiginlegt afmæli mín og Bigga í dag og í veislunni verða ég og Biggi og Guðmundur bróðir og Åse mákona.  Það er aldeilis veisla :)  Á boðstólum verður íslenskt lambalæri og heit peakanhnetu kaka í eftirrétt…..jammí jamm.  Annars er þetta samantekið ráð hjá okkur hvað varðar afmælisveislur í þessari fjölskyldu.  Ég og Biggi höldum upp á okkar afmæli saman og svo er eitt afmæli handa öllum krökkunum okkar, fyrir 5 manna fjölskyldu 2 afmælisveislur…..geri aðrir betur.  Hagkvæmnin verður ekki betri! 

Við fórum með krakkana út að ganga í gær í vagninum þar sem að veðrið var svo gott, keyrðum í bæinn okkar og röltum um með krakkana í vagninum og fórum svo þar sem að endurnar eru og haldiði að við höfum ekki bara séð 2 svanaforeldra með 3burana sína!  En þegar við vorum að labba þá var ekki óalgengt að heyra orð eins og FÍ FAN, bent í áttina að okkur og talað um okkur eins og við værum ekki á staðnum.  Hressandi, maður er bara eins og sirkusdýr, ekki alveg það sem ég er að fíla.

Biggi er svo að fara að vinna á þriðjudaginn, vona að ég fái aðstoð þann dag!  Það kemur sennilega ekki í ljós fyrr en á morgun…….veit ekki alveg hvað ég geri ef ég fæ ekki aðstoð og svo til að toppa það þá byrjar Biggi vinuna á vakt.  Annars vorum við að spá í að Biggi tæki síðan restina af feðraorlofinu sínu í sumar, þannig að hann yrði í feðraorlofi frá Maí til og með Ágúst.  Það er líka örugglega frábær tími til að vera í “fríi” svona yfir sumarið, þá getum við skroppið yfir til Lundar og svona.  Þar að segja ef einhver getur hýst 5 manna fjölskyldu :)

Svo er stór dagur á morgun fyrir utan afmæli húsbóndans, við erum að fara á fund með bænum og heilsugæslunni varðandi aðstoð.  það verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr honum og hvað við fáum mikla hjálp.  Spurning að taka krakkana svanga og pirraða……nei það er ekki hægt að gera þessum skinnum það ;)

Ef einhverjir eru að velta fyrir sé að koma, þá vantar okkur aðstoð í Apríl!  Mars er nokkuð dekkaður, Tinna frænka Bigga kemur í viku og svo koma Kolli og Anna í viku um páskana.

Jæja ég er farin að gera eitthvað hér á heimilinu…….


Tíminn flýgur

Friday, February 8th, 2008

Jamm tíminn flýgur áfram og ég er orðin 33 ára, nokkuð töff tala að mínu mati !  Takk fyrir allar hamingjuóskirnar frá ykkur :)  Síminn stoppaði ekki og skrilljón mailar, greinilegt að maður verður vinsæll á því að búa erlendis.

Annars kom rafvirkinn í dag og lagaði rafmagnið sem var í ólagi, þannig að núna ætti allt að vera komið í rétt horf.  Gestaherbergið er reyndar eins og gatasigti eftir rafvirkjann, það voru ekki boruð nema 7 göt á vegginn til að koma vírum inn í barka.  Hresst að fara að laga þessi göt og sparsla upp í !

Biggi sefur núna með skvísunni sinni upp í hjónarúmi, hann er bara orðinn háður því að sofa með eitthvað af gríslingunum hjá sér……sofnar bara ekki öðruvísi ;)  Annars er ég að bíða eftir að næsta gjöf byrji, nenni ekki að fara að sofa fyrr.

Stefna er tekin á göngutúr með krakkana á morgun, sjáum hvað setur


Lok lok og læs og allt í stáli

Tuesday, February 5th, 2008

Jæja þá er ég búin að læsa myndasíðunni, eða myndunum sem tilheyra meðgögngu og þríburunum.  Þeim sem að langar að sjá og skoða myndirnar verða að senda mér póst á rumpastrumpa@hotmail.com þannig að ég geti gefið ykkur lykilorðið að myndunum.  Og að sjálfsögðu bætti ég í safnið og skellti inn myndum af krílunum, þannig að þið getið farið að demba á mig pósti :)

Annars er daman á heimilinu búin að vera sönn prinsessa í dag, búin að skipta 4 sinnum um alklæðnað, þar sem að móðir hennar hefur hvort eð er ekkert annað að gera en að þvo þvott!


Sprengidagur

Tuesday, February 5th, 2008

Hér er enginn sprengidagur…..húsfreyjunni er líka alveg sama um það.  Hún borðaði yfir sig af saltkjöti í sveitinni hjá Agnesi systur, hvað húsbóndann varðar þá hefur hann ekki atkvæðarétt í þessu máli, punktur og basta.

Núna sofa allir í húsinu nema ég, pabbinn uppgefinn eftir að vera hlustari á næturna eða kannski er hann bara uppgefinn eftir bolluátið í gær.

Mamma og pabbi eiga 53 ára brúðkaupsafmæli í dag, til hamingju með það ! 

Stór dagur á morgun! spurning að taka eitthvað gott upp úr frystinum, kannski íslenskan fisk eða hrygg. Það er ekki á hverjum degi sem maður tjaldar íslenskum fiski hér í norge.  Hér er fiskurinn óætur, eldgamall og slepjulegur!

Jæja ég ætla að fara að gera eitthvað af mér fyrst ég er ein vakandi.  Skrifa eitthvað viturlegra seinna.


Bolla bolla bolla bolla!

Monday, February 4th, 2008

Jamm hér í Noregsveldi er líka bolludagur, stelpan skellti í vatnsdeigsbollur milli mjalta sem voru síðan borðaðar í kvöldkaffinu.  Karítas Ísold reyndi samt að koma í veg fyrir að foreldrarnir kæmust í kræsingarnar, en við náðum að svæfa engilinn.  Mamman drakk Pepsí Max með bollunum og það verður forvitnilegt að sjá hvernig næturvaktin verður!

Annars er bara búið að vera brjálað að gera á stóru heimili, við förum aldrei á fætur fyrr en um hádegi þar sem að gjafir eru um 2 til 3 á næturna og svo aftur um 7-8 um morguninn þannig að við lúrum á milli þessara gjafa.  Mamman lætur ekki margt trufla þennan svefn sem hún fær og getur sofnað við allt.  t.d. í gærnótt þá öskraði Hlini Snær úr sér lungun og mamman bara sofnaði og svaf sínu blíðasta, Biggi mátti taka hann í gestaherbergið þar sem hann var farin að vekja systkini sín en mömmuna náði hann ekki að trufla.  Pabbinn er því í því hlutverki að hlusta á krakkana á meðan að mamman býr til mjólk :)

Annars var Eivor hjá okkur fyrir viku síðan og hjálpaði til við gjafir það var alveg frábært að hafa hana, takk Eivor mín. Held að okkur hafi kannski tekist að kítla eggjastokkana hennar örlítið, nú verður Alli að standa sig og koma boltanum í netið! Það er komin pressa á kallinn.  Hann fann reyndar ágætis nafn á Grinibråten 58……hann nefndi það “Kids Farm”, hresst nafn á barnaheimilið.

Krakkarnir fóru í 6 vikna skoðun um daginn og fengu fína skoðun eins og venjulega. Hlini Snær er orðinn 14 merkur og 50cm, Birkir Smári er orðinn 15 merkur og 52cm og Karítas Ísold er orðin 13 merkur og 49cm.  Þau stækka bara eins og vindurinn.  Við fórum síðan í kjölfarið með þau út í vagn að ganga um hverfið, og það var heldur betur tekið eftir hummernum a.k.a. “barnavagninum”. Hér má sjá símamynd af því

fyrsti göngutúrinn

jæja nú er allt gengið vaknað og við erum að fara að gefa.