Archive for March, 2008


Myndir marsmánaðar

Friday, March 28th, 2008

Eftir mikinn þrýsting fjölskyldu og vina ákváðum við að skella inn myndum frá marsmánuði, hér koma þær.

Krakkarnir


Margt um manninn

Friday, March 28th, 2008

Hér er búið að vera mikið að gera og margt um manninn og lítill tími í skriftir, en hér kemur smá pistill 

  • Kolli bróðir og Anna komu í heimsókn til okkar og voru yfir páskana, alltaf gaman að fá heimsóknir og nauðsynlegt að fá auka hendur.
  • Krakkarnir fóru til útlanda í fyrsta skiptið og það til Svíþjóðar, það er efni í heilt blogg!
  • Krakkarnir fengu 3ja mánaða sprauturnar, ekki alveg sátt við þær.  Fengu smá hitavellu um kvöldið en voru orðin hress morgunin eftir.
  • Við 3ja mánaða aldur voru þau orðin eftirfarandi; Hlini Snær 5100gr og 57cm, Birkir Smári 5300gr og 58cm(strákurinn aftur orðinn stæðstur) og Karítas Ísold 4600gr og 55,5cm
  • það er búið að bóka þónokkuð af heimsóknum til okkar og erum við ferlega sátt við það, ekki slær maður hendinni á móti því
  • Sjónvarpið er enn í tómu rugli….eða öllu heldur eru Norðmenn geðveikir þegar kemur að pöntunum og afhendingu á kapal-/gervihnattasjónvarpi.  Held að þetta sjónvarpsmál okkar sé efni í eitt gott blogg eða bara efnisgrein hér að neðan

Já Kolli og Anna komu hingað um páskana með heljar páskaegg handa foreldrunum sem áttu ekki í vandræðum með að kyngja niður eins og 2 stk af Nóa nr 7 :)  Nammi namm.  Fyrir páskana ákváðum við að fara í innkaupaferð til Svíþjóðar og byrgja okkur upp af mat og drykk.

Við keyrðum til Svínasunds og fórum þaðan í Nordby verslunarmiðstöðina.  Þegar við vorum komin þangað þurftum við að gefa liðinu að drekka, það gekk vel og voru þau síðan sett í barnavagninn sinn og trilluð um.  Landinn í Svíþjóð var ferkar spes, eitthvað samansafn af skrítnum Norðmönnum og Svíum sem að unnu í búðunum.  Hér var strax byrjað að hrópa á okkur, benda á okkur og fólk komið hálfa leið ofaní vagninn til að skoða þríburana sem voru á ferðinni.  Mér finnst alveg merkilegt þegar fólk spyr mig hvort að þetta séu þríburar !!!! Við hverju bíst fólk við að ég hafi safnað saman líkum börum og sett þau í þríburavagn sem ég keypti mér af því að það er svo töff að labba með hann.  Já maður þarf víst ekki að skilja allt í þessu lífi það er greinilegt.  En allavegana eftir að hálft bæjarfélagið hafði skoðað þríburana okkar hálft ofaní vagninum þá var kominn tími á heimleið og fyrst þurfti að gefa þeim að drekka.  Kolli bróðir Bigga og Biggi gáfu tveimur framí bílnum og ég var með 1 á brjósti afturí og þríburavagninn fyrir utan bílinn, þegar að þetta átti sér stað löbbuðu 2 kellur framhjá bílnum og sáu hvað var að gerast og við það stoppuðu þær og gláptu brosandi inn í bílinn í c.a. 2 mínútur.  Ég bjóst bara við að þær myndu banka á rúðuna hjá okkur.  Svíinn og Norsarinn eru bara eitthvað spes……

Svo er það hið alræmda sjónvarpsmál……..Við sem sagt pöntuðum okkur canal digital gervihnattasjónvarp þann 2.febrúar og erum ekki enn búin að fá það til okkar!  Þegar við pöntuðum þetta þá var okkur sagt að þetta tæki vikuna ef það liðu 10 dagar þá ættum við að hringja, ok flott!  Eftir 10 daga hringdum við og þá var okkur sagt að þetta kæmi eftir 2 daga og svo að þeim liðnum hringdum við aftur og sama sagan, svona gekk þetta í nokkra 2 daga.  Þá hringdum við brjál og sögðum alla söguna og báðum um að fá að tala við einhvern sem að vissi eitthvað.  Þá var okkur tjáð að þar sem að við værum að bíða eftir HD(High definition) mótara þá þyrftum við að bíða aðeins lengur, pöntunin hafði eitthvað misfarist.  Ekkert mál en við báðum þá um að fá okkur tengd við kapal sjónvarpið á meðan þannig að við gætum horft á eitthvað……nei það tók 5 vikur þó að við værum búin að bíða hér í 5 vikur.  Ok þá vildum við það ekki og báðum þá að fá sendan venjulegan mótakara sem átti N.B. að taka vikuna til að geta byrjað að horfa þó að það væri ekki í HD.  Já það var hægt en það tæki viku……já já ekki málið.  Eftir rúma 10 daga þá fengum við 4 póstsendingar frá Canal digital með dagsmillibili, þá vorum við sem sagt að fá mótakarana og diska!  Með þessu átti að fylgja frí uppsetning en ekkert stóð um það þannig að við hringdum í þá og sögðumst vera komin með allt dótið frá þeim og föttuðum ekki alveg afhverju við værum að fá 2 stk af hverju fyrst HD mótakarinn var kominn en hvað um það.  En þeir sjá ekkert um að setja upp, það er eitthvað annað fyrirtæki og lét hann okkur fá númerið.  Þegar við hrindum svo í þetta númer þá sagði kallinn að hann gæti kannski komið 1.apríl!!!!!!!  Þannig að þetta er örugglega bara snemmbúið aprílgabb hjá norsurunum, rosalega fyndið allt saman, eða ekki ! 


Hressandi nótt

Thursday, March 13th, 2008

Krakkarnir eru búnir að vera ferlega fínir undanfarnar nætur en nóttin í nótt var hressandi.  Við ákváðum að gefa bara dálítið snemma og fara bara strax að sofa og vakna frekar bara með þeim fyrr.  Þannig að gjöfin byrjaði rétt yfir 22 í gær, venjan er að gjafirnar taki 45mín - 60mín en þessi tók ekki nema 4 tíma.  Hlini Snær og Birkir Smári voru í fullu fjöri til 02 og svo vökuðu þeir bara aftur svangir kl 05, þannig að illa fór fyrir nætursvefninum!  Foreldrarnir voru sprækir með börnunum í morgun, með bauga niður að höku og hárið á Bigga allt út í loftið……hahahaha

Annars var ég að panta ungbarnasund fyrir þau, við byrjum reyndar ekki fyrr en í haust.  Þannig að nú þarf ég bara að finna einhvern sem langar að koma með okkur í ungbarnasund, því það þurfa að vera 3 fullorðnir með og væntanlega þarf ég að finna aukamanneskju stundum þar sem að Biggi er á vakt einstaka sinnum!  Bíður einhver sig fram í sundnámskeið með krökkunum ????? 

Tinna var hjá okkur í síðustu viku, ferlega fínt að hafa aukamanneskju inn á heimilinu, dreifir álaginu.  Þar sem að húsmóðirin er orðin smá þreytt.  Takk Tinna mín fyrir hjálpina ;)

Jæja ég er farin að leggja mig, þarf að hlaða batteríin  


Vinsamlegast sendið páskaegg

Monday, March 10th, 2008

Ég hef fengið fregnir af því að verið sé að undirbúa stórfelldan flutning á páskaeggjum til okkar, enda páskar í nánd.  Tollgæslan í Noregi hefur ákveðið að hafa aukaviðbúnað í Gardemon flugvelli næstu vikurnar

 Af the kids er að frétta; sváfu samfellt í 6 tíma 3 daga í röð, við ógurlegan fögnuð pabbans.  Birkir tók 200 ml á pela í dag í einum rykk.  BirkirSmári/Hlini Snær átti bara að vera 1 bróðirinn á móti systurinni en snemma á okfrumustigi sá hann að hann ætti engan séns í ráðríka verðandi systur sína og ákvað því að skipta sér í tvennt til að dreifa álaginu.

Búin að kynnast skype í gegnum Tinnu.  allgjör snilld þegar það virkar.  Notendanafnið okkar á skype er triburar, endilega hringið sem oftast; Ása er farinn að tala barnamál og þarf að æfa fullorðins íslensku

Eva hin tékkneska tekur 3 og 50 nrk á km, þetta tilboð gildir fyrir alla fjölskyldumeðlimi og kunningja okkar.  Getur verið á stærri bíl ef með þarf.

Eva er s.s konan hjálpar okkur á daginn.  Hún tekur reglulega pásur og fer út á pall til að gera tékkneska útgáfu af Möllers æfingum.  Mætti um daginn í norskum hnébuxum og háum sokkum við mikla gleði heimilisfólksins.  Líkt og sannur norðmaður geymir hún alltaf gönguskíðin út í bíl.  Annað gott dæmi um þetta er að allir norðmenn eru með tengdamömmubox upp á bílnum þar sem þeir geyma gönguskíðin.  Verstu dæmi um þetta er að Gummi bróðir Ásu er með svoleiðist box upp á bmw 500 eitthvað sportbíl og gaurinn sem keyrði fram úr mér um daginn á svörtum porsche sportbíll með risatengdamömmubox upp á.

Minni svo á lokum að vera með leikmönnum Liverpool annaðkvöld á San Siro leikvanginum þar sem þeir taka á móti vatnsgreiddum leikmönnum Inter Milan.  Go Poolers. 

Kveðja Grinibråten gengið


fullt að gera á stóru heimili

Monday, March 3rd, 2008

Jamm hér er mikið að gera og lítill tími til skrifa.  Við Eva fórum í göngutúr með krakkana og viktuðum krakkana, þau voru búin að bæta á sig eins og vanalega.  Stóru fréttirnar eru samt þær að Hlini Snær stóri bróðir er orðin “Stóri Bróðir”. 

  • Hlini Snær er sem sagt orðinn 4.635 gr og 54cm
  • Birkir Smári er orðinn 4.615 gr og 54cm
  • Karítas Ísold er 4.250 gr og 52cm. 

Það er greinilegt að Karítas Ísold ætlar að vera lítil mús eins og mamma sín :)

Vegna fjölda áskoranna þá skelltum við nýjum myndum inn sem við tókum í febrúar

Annars viljum þakka kærlega fyrir allar gjafirnar sem krakkarnir hafa verið að fá, hér er það sem við erum búin að fá og vonandi erum við ekki að gleyma neinum, ef það gerist þá er það ekki illa meint :)

  • Guðbjörg og Hjálmar gáfu okkur flísteppi sem mikið eru notuð
  • Agnes gaf okkur Disney húfur sem verða notaðar örlítið seinna (þurfa aðeins að stækka)
  • Friðdóra og Sindri gáfu okkur föt og olíu
  • Siggi og Sigrún gáfu okkur galla sem þau fara rétt bráðum að passa í
  • Sísí og Lalli gáfu okkur föt, þau verða notuð aðeins seinna :)
  • Frímó stelpurnar gáfu okkur kerrupoka sem er notaður í öllum ferðum í vagninum
  • Krístín, Sigga og Bjössi gáfu okkur annan kerrupoka sem er vonandi á leiðinni ;)   (smá skot á Kristínu!!!!)  
  • Sigurlín prjónaði æðislega trefla
  • Guðbrandur og Mæja gáfu okkur föt og bangsa
  • Agnes systir gaf okkur föt og húfur
  • Pétur og Ellen lögðu inn á okkur $$$$$
  • Þorsteinn, Berglind og Benni gáfu okkur föt
  • Systurnar (a.k.a. Anna, Jóna, Lára og Regína) gáfu okkur Tripp Trapp stóla
  • Eivor og Alex gáfu okkur föt

Við höfum verið að fá fyrirspurnir hvað okkur vanti og við teljum að það sé bara best að fá pening inn á reikning hjá okkur.  Það er bæði erfitt fyrir okkur að skipta því sem við fáum eða bara alls ekki hægt þar sem við búum í Norge (Ekki að við séum að skipta öllu ;) hahahahah  ) og svo er líka bara dýrt að senda út til okkar pakka.  Við ætlum t.d. að nota pening í að kaupa næstu bílstóla fyrir krakkana og eitthvað svoleiðis.  En auðvitað er líka gaman að fá pakka, þið mættuð samt lauma einhverjum fötum á húsfreyjuna með!  Þetta eru allt föt á krakkana!

Jæja komin tími á gjöf…..