Krakkarnir
Tuesday, April 15th, 2008Við vorum að fá í póstkassann okkar neitun um leikskólapláss, ferlega hressandi. Við vorum að vonast til að þau fengju pláss í janúar, en það er samt ekki alveg útséð. Við förum á biðlista, spurningin er bara hvar lendum við á þessum blessaða biðlista og svo er það alltaf það að við þurfum 3 pláss eða ekkert pláss, það gæti verið verra þegar við erum á biðlista.
Annars voru krakkarnir í skoðun í gær
- Hlini Snær er orðinn 5.835 gr og 60,5 cm
- Birkir Smári er orðinn 5.870 gr og 61 cm
- Karítas Ísold er orðin 5.250 gr og 58 cm
Já þau eru dugleg að stækka og sýna kúnstir enda bara 5 dagar í að þau verði fjagra mánaða….ussss hvað tíminn líður hratt! Siri hjúkrunarfræðingur sem er alltaf með þau sagði að það væri ekki hægt að sjá á þeim að þau hefðu fæðst fyrir tímann svo dugleg voru þau
Þegar við vorum að fara með krakkana þá fékk amma Brynja smá nasasjón af vinsælum þeirra……hún var margoft spurð hvort að hún ætti þessa þríbura og fór hún öll í flækju og sagðist vera amma þeirra ekki mamma þeirra :)
Jæja ég ætla að reyna að gera eitthvað hérna meðan krakkarnir sofa úti í vagninum.
