Þá erum við að fara að keyra aftur til baka til Lundar á morgun. Ferðin niður til Lundar tókst bara vel, krakkarnir una sér vel í bílnum. Veit ekki alveg til hvers við keyptum bíl sem var með DVD kerfi. Þeim finnast bílhljóðin bara fín og útsýnið út um gluggana bara ágætt, spurning hvað það gengur lengi í þau, en við eigum þá DVD dótið þegar trén fara að verða leiðinleg :)
Hér kemur smá samantekt á því sem við erum búin að gera
Lundur (Svíþjóð)
Við mættum á svæðið á föstudaginn var og að sjálfsögðu var konunglega tekið á móti okkur, grillveislur og tilheyrandi. Svo fórum við í þríbura afmæli hjá Kidda og Níní, fróðlegt að syngja afmælissönginn en fínt að sjá hvernig á að gera þetta áður en að afmæli hjá okkur bera að garði. Annars kom Lundurinn bara nokkuð á óvart, krakkarnir(Kiddi, Níní, Teddi, Guðbjörg, Davíð og Ásta) hafa það bara flott þarna og una sér vel. Það var reynt að fá okkur yfir en við látum ekki bugast og höldum okkur við Noreg. Við röltum um í bænum og fórum meðal annars í barnabúð sem var í kjallara og til að komast þangað máttum við taka barnavagninn í sundur að hluta til, annars hefðum við ekki komist inn í lyftuna, það lá við að ég pissaði í mig af hlátri við að reyna að troða vanginum inn í lyftuna. Annars fékk Hlini Snær 38,5 stiga hita síðasta daginn sinn, en hann var ekki með neinn hor eða hósta, sennilega bara tennur eða eitthvað. Birkir Smári fékk síðan hita daginn eftir í Flensburg og svo ekki söguna meir.
Flensburg (Þýskaland)
Við keyrðum yfir til Flensburgar á Fimmtudaginn var til að heimsækja Alex og Eivor. Lúkas er búinn að vera á fullu að hjálpa til með þríburana, setja snuð upp í þau, athuga með táfýlur og skoða í beiurnar. Í gær fórum við svo á síðasta leikinn í deildinni og horfðum á Flensburg - Minden við gífurleg læti í höllinni, á meðan á þessu stóð sváfu krakkarnir í vagninum inni í höllinni. Þegar leikurinn var búinn tók svo við asnalegasta upplifun æfi minnar, fyrir utan höllina var náttúrulega gífurlega mikið af fólki þar sem að einhver skemmtun átti að vera á sviði þar fyrir utan. Allavegana við trilluðum þarna með vagninn og þegar við mættum opnaðist bara svona gjá í mannþröngina og allir byrjuðu að glápa, benda, ópa og gala eitthvað á þýsku og ég er kann ekki eitt orð í þýsku. Þetta var orðið svo vandræðalegt að ég fór frá Bigga og lét hann bara keyra vagninn, bigga til mikillar ánægju. Þjóðverjar eru náttúrulega svolítið spes….eigandi börn á fimmtugsaldri og sennilega sitt eina barn, þannig að þríburarnir mínir voru eins og sirkusdýr…..ekki spennandi! Svo fórum við á fótbotlaleik í dag þar sem handboltaliðið var að keppa í fótbolta á móti liði hér í Flens, ferlega gaman. Alex er orðinn meistari að svæfa krakkana, maður bara leggur þau í hendurnar á honum og þau eru sofnuð á engum tíma, spurning hvað þessi þríburaheimsókn mín eigi eftir að setja mikla pressu á Eivor. Á morgun er síðan förinni aftur heitið til Lundar þar sem við ætlum að stoppa í 1 - 2 nætur áður en við förum aftur heim til Noregs.
En eftir þetta þá er bara ekkert mál að ferðast með þríburana, það verður bara einfaldara…..krakkarnir fara bráðum að hætta á brjósti og geta farið að borða mat og þá verður þetta auðveldara…….kannski við leggjum bara í aðra heimsókn einhverntímann í ár. Þetta er búið að vera alveg ferlega gaman og sérstaklega fyrir mig að fá að hitta vini mína aftur og komast út út húsi
Kveðja ferðalangarnir Ása, Biggi, Hlini Snær, Birkir Smári og Karítas Ísold