Krakkarnir orðnir 6 mánaða
Saturday, June 21st, 2008Krakkarnir urðu 6 mánaða í gær, mikið svakalega líður tíminn hratt. Hrikalega stutt síðan þau gerðu ekkert annað en að sofa og drekka. En í tilefni af deginum þá voru settir upp tripp trapp stólarnir, núna sitja krakkarnir í tripp trapp meðan mamma og pabbi borða morgunmatinn eða bara þegar mamma og pabbi þurfa að kaupa tíma. Það er hrikalega fyndið að horfa á þau í stólunum. Karítas Ísold er á fullu að skemmta bræðrum sínum með allskonar hljóðum og brosum og þeir skellihlæja að henni, spurning hvort að samkomulagið verði alltaf svona ??????
Þar sem að það var verkfall hjá hjúkrunarfræðingum þá fóru krakkarnir seint í 5 mánaða sprauturnar sínar og því voru þau ekki viktuð við 5 mánaða aldurinn heldur bara á mánudaginn var og þá var staðan eftirfarandi
- Hlini Snær 7245 gr og 66 cm
- Birkir Smári 7145 gr og 67 cm
- Karítas Ísold 6420 gr og 63 cm
Öll halda þau sinni kúrfu og var Siri Hjúkrunarfræðingur ferlega sátt með þau, Strákarnir eru komnir inn í kúrfu fyrir jafnaldra þ.e. 6 mánaða en Karítas Ísold sleikir neðstu línuna af kúrfunni. Það er greinilegt að Karítas Ísold ætlar að fara rólega í þetta, hún er bara að einbeita sér að öðru, eins og t.d. að vera ekki kjur á leikteppinu sínu :)
Enginn tönn er farin að kræla á sér og er mamman bara ánægð með það, þar sem þau eru enn á brjósti
Annars styttist í næstu heimsókn, Agnes systir, Einar og Laufey Ása eru að koma og verða í 3 vikur…..spennandi tímar framundan og allta að gerast
Jæja við erum farin að horfa á leikinn…….áfram Holland!