8 mánaða
Monday, August 18th, 2008Krakkarnir eru alveg að verða 8 mánaða og í tilefni af því fóru þau í skoðun upp á heilsugæslu. Eins og ávallt komu þau glymrandi vel út.
- Hlini Snær 8.200 kg og 70 cm
- Birkir Smári 8.300 kg og 70 cm
- Karítas Ísold 7.450 kg og 65 cm
Karítas Ísold tók sem sagt stökk inn í kúrfuna, hún hafði áður bara dansað á neðstu línunni en núna er hún komin inn í kúrfuna, litli skæruliðinn!
Hér er margt að gerast og bíðum við spennt eftir að Karítas Ísold byrji að skríða áfram, hún gerir öfugt V með líkamanum, stendur á tám og fer á 4 og juggar sér þar fram og aftur. Hún settist meira að segja sjálf út á miðju gólfi um daginn. Þá var hún búin að íta sér út á mitt gólfið og sat þar eins og prímadonna. Strákarnir eru aðeins á eftir systur sinni í þessu en þeir eru líka að reyna að fara áfram.
Mikill sorgardagur var í dag, pelinn var tekinn af þeim. Nú fá þau bara að drekka úr stútkönnum…….Hér er sem sagt búið að vera grátur og gnýstan tanna í dag (eða a.m.k. hjá Karítas, strákarnir enn tannlausir). En annars eru krakkarnir voðalega glöð og kát og sérstaklega ef þau fá ávöxt á fæðunetið sitt. Hlini Snær verður vitlaus þegar ég tek það af honum, orgar eins og honum hafi ekki verið gefið að borða í fleiri sólarhringa. Svo er líka voða sport að lemja því í borðið….aðeins að búa til hávaða og skemma borðið hennar mömmu


Á morgun er svo stefnan tekin á Osló nú á að sína Jómba og Brynju höfuðborgina. Ætli það verði ekki hresst með krakkana organdi á stútkönnurnar sínar.
Annars voru Afi Guggi og amma Mæja hérna í byrjun ágúst og höfðu svakalega gaman af og við líka. Krakkarnir fengu líka svo fína 66°N galla frá þeim sem þau eru byrjuð að nota, veðrið hefur ekki verið upp á sitt besta.
Ég byrjaði svo að æfa í dag, það verður fyndið að sjá þegar ég fer að fara með þríburana í pössun í ræktinni :) En æfingastöðin mín er í Sandvika Storsenter þannig að það er ekki langt að fara og svaka fín stöð svona í WC klassa. Tók þríhöfða og bak í dag….spurning hvernig ég verð af sperrum á morgun.
Já nærri búin að gleyma því, við erum á fullu að leita okkur að au pair (því miður), það er ekkert annað í stöðunni. Erum að skoða stelpur frá Thai og Philipino, þær eru svo duglegar og ég held að þær verði ekki mikið í því að hanga yfir okkur á kvöldin. Biggi byrjar að vinna 1.sept og þá þurfum við fljótlega að fá einhverja stelpu því frá 1.sept verð ég annars ein með krakkana!!!!!
Jæja ég ætla að skella mér í bólið enda allir löngu farnir þangað. Osló kallar snemma í fyrramálið!