Heimsóknartíminn er líðinn, við erum búin að vera með ágætis heimsóknarhrinu hjá okkur og hefur það bara verið gaman. Amma Brynja og Jómbi afi voru hjá okkur í tæpar 3 vikur það var notalegt. Síðan strax í kjölfarið kom Teddi og Guðbjörg til okkar frá Lundi, ferlega gaman og fórum við á túristastaði með þeim, tíndum ávexti af trjám og létum fara vel um okkur. Þar sem að við erum bara orðin 5 manna fjölskylda aftur þá var ekki seinna en vænna að skella sér á Au pair stúlku, hún heitir Anusha og er 30 ára frá Sri Lanka. Hún er alveg frábær með krakkana, klár og skemmtileg stelpa sem er síbrosandi. Biggi byrjaði að vinna 1.sept þannig að við urðum að fá einhvern til að hjálpa mér með krakkana.
Af okkur er annars allt gott að frétta. Strákarnir eru enn í afturá bak gír en Karítas Ísold fer áfram eins og herforingi. Hér eru allir farnir að sitja og strákarnir skemmta systur sinni með því að klappa saman höndunum. Birkir Smári er að fá 2 neðri tennur, enda slefar hann ágætlega með því, hann er líka farin að kalla MAMMA! Strákurinn að bræða móður hjartað :) Hlini er búin að vera ansi slæmur af þurrki í húðinni í 2 vikur og ætla ég að fara með hann til læknis í fyrramálið, læknirinn sem er heimafyrir er sjálfur sjúkur upp í rúmi núna. Hann er með ljótan hósta, hita og hálsbólgu eða það sem að sumir myndu kalla það “Man cold“.
Biggi er núna á fullu að reyna að finna lítin bíl til að druslast í vinnuna á og haldiði ekki að hann hafi farið og prufukeyrt rafbíl í gær! Hefði viljað sjá það. Engvir gírar eða hjóð bara petalar og svo snír hann víst við á punktinum liggur við.
Ég er síðan að vinna í því að koma myndum inn, klára það einhverntíman í vikunni. Jæja ég er farin upp í rúm að hitta lazarus.