Skrítnir tímar
Wednesday, October 15th, 2008Já það er ekki laust við að það séu skrítnir tímar núna, allt í upplausn heima og ég veit ekki hvort ég hef vinnu í nýjum banka. Ég tilheyri kaupþingi í Noregi og satt best að segja býst ég við uppsögn. Þar sem að ég vann þar í 1 mánuð í fyrra og þá bara fyrir Ísland þannig að þegar að starfsmannastjórinn í Noregi fer að velta fyrir sér hverjum hann á að halda og hverjum hann á að sleppa þá hugsa ég að ég sé ofarlega á sleppa listanum. En ég er að vona að ég haldi þá mínum réttindum, þar að segja að það verði ekki hægt að segja mér upp í fæðingarorlofi! og að ég haldi þá launum til Maí á næsta ári. En þetta kemur allt í ljós á næstu dögum, hef enn ekki náð sambandi við starfsmannastjórann hér í Noregi.
En að einhverju öðru :) Mamma og Pabbi eru að koma í heimsókn og verða í 1 viku, þar sem að mamma er búin að selja fyrirtækið sitt þá verður hún kannski bara tíður gestur hingað, maður veit aldrei.
Krakkarnir eru að fara í 10 mánaða skoðun á morgun, og það verður fróðlegt að sjá hvað þau eru orðin stór. Síðustu helgi byrjaði Birkir Smári að skríða eins og herforingi og helgina þar áður var það Hlini Snær. Þannig að núna eru allir komnir á flakk og byrjaðir að skoða í skúffur og annað slíkt, ferlega gaman.
Jæja ég læt ykkur vita þegar ég veit eitthvað meira um framhaldið…….kveð að sinni