Já það er orðið allt of langt síðan ég skrifaði hér síðast, þannig að þessi færsla verður tileinkuð fullorðna fólkinu
Já hvað varðar vinnu hjá mér þá missti ég vinnuna, sem að ég bjóst svo sem við. Ég var með samning við Kaupþing hér í Noregi en hafði aldrei unnið fyrir þá heldur bara Ísland. Og þegar kemur að uppsögnum þá segir það sig sjálft að maður lætur fyrst fólkið fara sem maður þekkir ekki, hefur unnið styðst o.s.frv. þar með var ég efst á lista hvað varðar marga hluti. En hvað um það, eitthvað nýtt og skemmtilegt tekur við. Ég klára mitt fæðingarorlof fer svo á uppsagnafrest og fæ svo sumarfrí. Ég stefni því á að byrja að vinna aftur í September á næsta ári. Þá verða krakkarnir komnir á leikskóla og heimilishaldið því örlítið léttara hvað það varðar.
Við erum búin að vera á fullu að græja hér ofna, við keyptum nýjan viðarofn til að setja upp í stofuna og settum þann gamla niður, þessi vinna er búin að taka frá því í sumar. Þá hjálpuðu mamma og pabbi okkur við að losna við ógeðslega parafín ofninn sem var niðri. En núna er komin viðarofn niður sem kveikt var upp í, í morgun. Hrikalega notalegt. Ætli við kveikjum ekki upp í ofninum uppi við pomp og prakt í kvöld!
Í gær var ég svo að búa til krækiberjachutney, hrikalega gott! Agnes systir var svo góð við mig að tína ber fyrir mig og senda mér út með mömmu og pabba þegar þau komu. Núna eru þau bara komin niður í krukkur ásamt plómum frá spáni, góð blanda.
Það virðist ganga eins og flóðbylgja að vera óléttur þessa dagana.
- Jón Smári frændi minn og Íris kærasta hans eiga von á sínu fyrsta barni
- Eivor vinkona og Alex eiga von á sínu öðru barni
- Gunnare og Laufey eiga von á sínu fyrsta barni eftir örfáa daga
- Snjólla og Nonni eiga von á sínu fyrsta barni (á afmælisdaginn minn, takk!)
Ég óska ykkur öllum innilega til hamingju.
Ása sem hefur svo mikið að gera, en lofar að blogga oftar