Ég ætla seint að komast í smákökubakstur
Tuesday, December 9th, 2008Þá er önnur veikindahrina byrjuð. Hlini Snær liggur núna með 40°C og búin að vera þannig síðan í gærkvöldi og svo tók Birkir Smári upp á því að æla yfir allt rúmið sitt og nú liggur hann með pabba sínum upp í okkar rúmi og er líka búinn að æla yfir það allt.
Ég er alveg á nálum því þeir sem þekkja mig vel vita hversu hrædd ég er við ælupestir, það er bara ekkert eðlilegt. Ef ælupest gengur á einhverju heimili þá fer ég ekki þangað í viku. Núna bara vona ég að Birkir Smári nái ekki að smita systkini sín af þessum óþverra eða okkur foreldrana.
En hvað um það, síðasti tíminn í sundinu var í gær og fannst krökkunum að sjálfsögðu svakalega gaman og því erum við búin að skrá okkur á framhaldsnámskeið sem að byrjar í janúar. Jörgen, Inga og Gunn-Sofia eru búin að vera svo dugleg að hjálpa okkur í sundinu og eiga þau mikið hrós fyrir. Takk fyrir að nenna þessu með okkur
Jæja ég ætla að einbeita mér að jólakortaskrifum, ætli ég hafi ekki klukkutíma núna nema að eitthvað komi upp á!