Já gleðilegt árið og takk fyrir okkur
Desember var nokkuð erfiður, krakkarnir fengu hverja pestina á fætur annarri, kvef, hiti eftir sprautur, ælupest, hálsbolga og niðurgangur. Þannig að jólaundirbúningur var nokkuð erfiður og gerður helst á kvöldin þegar krakkarnir voru farnir að sofa, en þrátt fyrir það þá komu jól. En á undan þeim var náttúrulega 1.árs afmæli.
Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Ég er bara ánægð með að hafa komist í gegnum þetta ár án þess að missa heilsuna, enda komu tímabil sem voru alveg hrikalega erfið. Ég ætla ekkert að fara í felur með það, þetta er sennilega það erfiðasta sem ég hef gert en jafnframt það ánægulegasta, spurning um að taka bara tvíbura næst! En mikið rosalega hafa þau þroskast á þessu eina ári, stutt síðan þau gátu varla sig hreyft og núna stappa þau niður fótunum og leggjast killiflöt niður á gólfið ef þau fá ekki það sem þau vilja.
Margt var um manninn í afmælinu og var fullt hús af íslendingum. Við héldum upp á afmælið með pompi og pragt og var húsmóðirin með fullt borð af kræsingum og einni sjóræningjaköku fyrir krakkana. Okkur langar að þakka kærlega fyrir allar gjafirnar sem krakkarnir fengu
Amma og Afi og Kolli og Anna komu svo 21.des og voru yfir áramótin hjá okkur, hrikalega gaman og ómetanleg hjálp. Alveg ótrúlega gaman að hafa þau hjá okkur yfir jólin, horft var á dagvaktina, spiluð spil og “tillað” og leikið sér :) Áramótin voru ólögleg þar að segja við sprengdum upp allnokkuð af rakettum sem eru bannaðar í Noregi. Svíjarnir leifa allt slíkt þannig að sá varningur var keyptur þar og svo skotið upp ólöglegum flugeldum. Jón Björn og Kolli voru fremstir í þeim glæp.
Krakkarnir fóru í 1.árs skoðun og sprautur rétt fyrir afmælið sitt og eftirfarandi er mæling þeirra
- Hlini Snær 9.690 grömm, lengd: 75,5 cm og höfuðmál: 47 cm
- Birkir Smári 9.645 grömm, lengd: 76 cm og höfuðmál: 46,9 cm
- Karítas Ísold 8.605 grömm, lengd: 71 cm og höfuðmál: 44,3 cm
En svo enda ég þennan pistil minn á að segja ykkur að ég skellti inn 2 albúmum. Frá nóvember og desember þannig að þið getið séð hvað krakkarnir eru orðnir stórir og pattaralegir.
Áramótakveðja
Noregsgengið