Mikið að gerast
Wednesday, February 25th, 2009Hér er mikið að gerast og eru Hlini Snær og Karítas Ísold farin að ganga, Birkir Smári er enn dálítið að spara sporin sín. Mamma og Pabbir eru hjá okkur í heimsókn, alveg frábært að fá þau gömlu til okkar. Það er svo notalegt að sjá pabba gamla sofandi í nánast öllum stólum,sófum og stellingum og hrjótandi eins og herforingi.
En hvað um það þá er hér búið að snjóa villt og galið, snjómokstur er tíður hér á bæ. Og nú er spurning um að fara að príla upp á þak og losa snjó af þakinu, það er svo svakalega mikið upp á þaki og nágrannar okkar eru byrjaðir að losa af þökunum.
En gleðifréttir…….Krakkarnir eru komnir með inn á glænýjum leikskóla frá 1.ágúst. Júhú, svakalega er mér létt! Líka skemmtilegt nafnið á leikskólanum……Hornienga Barnehage! Af nafninu að dæma hlítur þetta að vera leikskóli fyrir fjölbura !
Svo er ég búin að skella inn myndum frá janúar, ekkert svakalega mikið af myndum en ég bæti það upp með myndbandi af krökkunum að ganga. Skelli því inn fljótlega.
Jæja kveð í bili þarf að fara að sinna mömmu og pabba.