Gullfoss og Geysir
Wednesday, March 4th, 2009Já það eru ekki góð tíðindi héðan, strákarnir hafa verið að skemmta okkur með Gullfoss og Geysi. Hlini Snær er búinn að vera veikur í viku og er orðin ansi lítill í sér og þróttlaus. Birkir Smári er búinn að vera veikur í 4 daga. Enn sem komið er hefur Karítas Ísold sloppið og vona ég að það haldi sér bara.
Annars var Biggi að taka snjóinn af bílskúrnum okkar og voru það ekki nema 10 tonn af snjó. Nú er bara að fara að príla hér upp á húsþak og losa af þakinu. Hér hrundi niður þak á einhverri Rimi matvöruverslun og allir í panikki að losa snjó af þökum hjá sér. Það verður gaman að fá allan snjóinn niður á bílaplan sem allataf er verið að moka :( En hvað um það betra að hafa snjóinn þar…..
Kolli eða heimalingurinn er að flytja til okkar á morgun. Heimalingurinn mun verða hér hjá okkur þangað til hann finnur íbúð fyrir sig og Önnu sem kemur svo 7.apríl út, mjög góður dagur vægast sagt. Þau fara bara beint í barnapössun um kvöldið
Við vorum að plana Lundar og Flensburgarferð, stefnan tekin á byrjun júní og í þetta skiptið ætlum við að prófa að taka ferju niður til Danmerkur og keyra þaðan til Flens og svo þaðan til Lundar. Það verður alveg ótrúlega gaman að fara aftur í heimsókn. Hlakka bara strax til
Svo skellti ég saman video-i af krökkunum taka fyrstu skrefin…versi gú