Vegabréf og kosningar
Saturday, April 18th, 2009Við fórum í íslenska sendiráðið í gær til að fá vegabréf fyrir krakkana og svo notuðum við tækifærið og kusum í leiðinni. Krakkarnir endurhönnuðu náttúrulega sendiráðið og léku á allsoddi ![]()
Það var gjörsamlega farið í allt og var kjörklefinn vinsæll. Þar hlupu þau inn og út og tjaldið sem var fyrir var svakalega mikið sport svona eins og gardínurnar heima. Myndatakan tókst ágætlega með strákana en Karítas Ísold þurfti nokkrar tilraunir, hún var að horfa upp í loftið hún, setti hendurnar í andlitið, hún horfði á gólfið, hún horfði á bara eitthvað allt annað en myndavélina.
En hvað um það á endanum hafðist þetta og á meðan dunduðu strákarnir sér við að dreyfa mold út blómapottunum um allt gólf og hinn henti rusli upp úr ruslatunnunum og dreyfði því vel um skrifstofuna.
Þegar að vegabréfsdótið var búið þá kusum við Biggi, já það fór ekki venjulegur stafur á kjörseðilinn okkar, heldur eitthvað nýtt fyrir nýtt Ísland
Vorið er komið til Noregs og því þarf að fara að huga að garðvinnu þó að snjórinn sitji enn í garðinum. Við þurfum að fara að klippa trén áður en við verðum aftur of sein með það. Ferskutréð er tilbúið og fer ég í eplatréð og runnan um helgina. Annars þurfum við að fara að kaupa sumarskó á krakkana á eftir því þau eru að fara að byrja í leikskólanum eftir viku…….ótrúlegt, alveg ótrúlegt!!!
Jæja kveð að sinni…..Ása í vorskapi

