Archive for May, 2009


Leikskólinn og strípalingar

Thursday, May 28th, 2009

Krakkarnir komnir á fullt á leikskólann aftur eftir smá veikindatímabil eftir aðlögun. Enn er grátið þegar ég fer en þau hætta fljótt að gráta og þegar ég kem að ná í þau er grátið. Alveg frábært að vera kannski ein að ná í þau og öll vilja þau að ég taki þau upp og haldi á þeim, það er stundum erfitt að vera þríburamamma. Allir öskrandi og henda sér í gólfið af því ég get ekki tekið þau upp. Já frábært líka þegar að aðrir foreldrar eru að ná í börnin sín og klæða þau í fötin, þá er varla talandi saman fyrir mínum börnum, já þetta er vel upp alið það er ekki hægt að segja annað.
En annars plumma þau sig alveg ágætlega bara á leikskólanum, Karítas Ísold er strax orðin þekkt fyrir danstaktana sína og strákarnir náttúrulega fyrir sjarminn.

Mesta sportið þessa dagana er að kúka á gólfið heima á kvöldin. Hlini snær er með vinninginn fyrir lengd ef marka má viðbrögð Kolla. Kolli sat í sófanum og gláfti á sjónvarpið og byrjað svo að snusa eitthvað út í loftið…og í öllu þessu snusi sínu var honum litið niður á gólf þar sem að “rónalolli” var á gólfinu eins og hann orðaði það. Kolli öskrandi inn í stofu það er bara eins og fullorðinn maður hafi komið þessu frá sér!
Og svona þegar maður er að láta tólin anda aðeins á kvöldin þá þarf maður nú líka að þrífa upp pissupollana hér og þar. Ég veit ekki alveg hvað þetta er með strákana en um leið og bleian er tekin af þeim þá bara byrja þeir að spræna og eru bara meira og minna sprænandi upp um allt og út um allt. En það er gaman að þessu :)

Annars erum við að fara í frí, ætlum að fara til Flensburgar að hitta Eivor og Alex og strákana þeirra. Við ætlum að prófa núna að taka bátinn til Danmerkur og keyra svo niður Fjón til þeirra. Svo förum við og hittum allt gengið í Lundi, hrikalega hlakka ég til.
Og svo eftir 2 vikur er sama ferð til baka þannig að við ætlum að gista eina nótt í århus á Radisson sas hóteli. það verður sennilega gaman þar í morgunverðarhlaðborðinu ;)

Annars er ég svona að byrja að líta í kringum mig varðandi vinnur, er að vinna í að þýða CV-ið mitt yfir á norsku og svona koma mér í stellingar. Spennandi tímar framundan ekki hægt að segja annað.

jæja farin að sofa, hugsa að ég komi samt ekki inn myndum áður en við förum en ég ætla að reyna að komast í það. Betra að lofa engu en ég reyni mitt besta að komast í það mál.


Sumar og sól……

Friday, May 1st, 2009

Já héðan er talsvert að frétta…..veikindasögur og slysasögur halda áfram….

Birkir Smári

Birkir Smári náði að handleggsbrjóta sig fyrir 2 vikum og er litla skinnið búinn að vera vera í gifsi eða öllu heldur nokkrum gifsum. Hann náði alltaf að klæða sig úr gifsinu og var bara með það einhversstaðar í rúminu þegar ég náði í hann á morgnanna, þannig að tekið var upp á því að setja hann bara í gifs upp fyrir olnboga. Það hefur tollað :)
En það sem að gerðist var það að hann datt bara niður úr stól og lenti svona illa á hendinni, hann fór sem sagt niður bak meginn á stólnum þannig að fallið var aðeins hærra. En hann er allur að koma til og tökum við sennilega bara gifsið af honum fljótlega. Það var talað um 2 - 3 vikur á spítalanum.
Síðan er það Birgir og börnin, þau fengu sem sagt öll kvef og hálsbólgu og eru búin að vera hóstandi í 3 vikur. Biggi fékk síðan lungnabólgu í kjölfarið og mikið kurrar í krökkunum. Þannig að enginn fór á leikskóla þessa vikuna. Nú vona ég að þau fari að hressast þannig að þau geti farið í leikskólann á mánudaginn.

En það er búið að vera rosalega gott veður síðustu daga og er garðvinnan hafin, ég ætla að bæta í garðinn moreller-trjám eða kirsuberjatrjám, svo er það bara að rífa upp arfa og önnur leiðindi úr beðunum!

Kveðja
Ása úr sumarveðrinu