Archive for December, 2009


Afmælisveisla yfirstaðin !

Sunday, December 20th, 2009

Jæja þá eru krakkarnir orðnir 2.ára, ótrúlegt en satt.  Við vorum með svaka afmælisveislu fyrir krakkana og að sjálfsögðu vorum við líka með stærsta snjókarl í Noregi og þó víða væri leitað.  Það voru nú ekki margir Norðmennirnir sem mættu í afmælið en sögur fara af því að skreytingarnar hafi verið “Harry” að þeirra sögn(a.k.a. Åse).  En Krakkarnir höfðu gaman af og foreldrarnir líka :)  Krakkarnir fengu svo mikið af pökkum að sumir pakkar voru bara hreynlega ekki opnaðir og verður unnið hörðum höndum við að opna pakka næstu daga áður en að næsta pakkaflóð byrjar ;)  Annars bara takk fyrir krakkana !

Hér kemur mynd af blæstri og svo hinum fræga snjókarli.  Annars skelli ég inn myndum á myndasíðuna við betra tækifæri.

Allir að blása :o

Allir að blása :o

Og svo er það snjókarlinn svakalegi :)

Snjókarlinn

Snjókarlinn


Jólakortamyndataka

Tuesday, December 15th, 2009

Já það er ekki það auðveldasta í heiminum að hafa 3 börn sem módel. Ég og biggi vorum að reyna að taka myndir af krökkunum til að senda með jólakortunum í ár og það tókst ekkert sérstaklega, vorum 2 klukkutíma og ég held að við höfum fengið ca 5 nothæfar myndir! Þetta er bara ekkert grín, svona voru flestar myndirnar…….hrikalega skemmtilegar

Það var bara alltaf einhver sem var að gretta sig, var ekki að horfa í myndavélina, grét eða bara eitthvað annað.  Ekki alveg það léttasta sem ég hef gert, en æfingin skapar meistarann.

En hvað um það nú er bara að demba sér í að skrifa jólakortin og koma þeim í póst fyrir föstudag! 

Hér hefur eiginlega allt verið á örðum endandum, við erum ekkert búin að gera fyrir jólin né afmæli krakkana sem er á sunnudaginn þannig að ég bíst við smá stressi um helgina.  En sem betur fer koma mamma og pabbi á morgun, greyið mamma verður pískuð út fyrstu dagana sína hér.

En Jómbi og Brynja voru hjá okkur í byrjun des alveg ótrúlega gaman.  Við fórum til Gautaborgar í helgarferð með öllum og gistum á hóteli.  Þvílíkt sport, en það er spurning hvort að fólkinu í nærliggjandi herbyrgjum hafi fundist sport að hafa okkur í næsta herbergi.  Krakkarnir voru nefnilega ekkert rosalega sátt í ferðarúmunum og öskruðu og grétu eins og ég veit ekki hvað fyrstu nóttina.

Hlini Snær, Karítas Ísold og Birkir Smári

Hlini Snær, Karítas Ísold og Birkir Smári

jæja ég þarf að hætta þessu bloggi og einbeita mér að því að gera eitthvað sem ég þarf að klára fyrir jólin.  bæjó og ef ég blogga ekki meira fyrir jól þá segji ég bara Gleðileg Jól.  En ég hugsa samt að ég skelli inn myndum og bloggi áður en jólin koma :)