15 April, 2009


Myndir

Filed under: Blog, Þríburarnir — 3burar @ 10:10 pm

Litla músin mín hún Karítas Ísold

Héðan úr veikindadal er allt bærilegt að frétta. Allir eru reyndar með hálsbólgu og kvef og foreldrarnir líka ;(
Páskarnir voru svakalega fínir með fullt af góðum mat og gestum og að ógleymdum páskaeggjum frá íslandi, guðdómlegt! Húsbóndinn fór í öll eggin á bænum þar sem að hans egg var ekki nógu stórt fyrir hann (Egg nr. 5 frá Nóa), mér og kolla til mikillar gleði.
En guði sé lof er snjórinn að fara og vorið að koma, pallurinn minn er að vera snjólaus þannig að nú er bara að draga fram sólarvörnina og bíða eftir blíðunni.
Ég hafði það af að setja inn myndir og hér koma þær, þannig að nú er bara eftir að setja saman eitthvað myndband af krökkunum og þá er ég bara nokkuð góð.

Annars fer ég að fara kíkja eftir vinnum fljótlega, eða þegar krakkarnir fara á leikskóla þá ætti ég að hafa tíma til að update-a CV og finna mér eitthvað skemmtilegt að gera :)

Kveð að sinni…….adios amigos

4 Comments »

  1. Mikið svakalega eru þau orðin stór! Alltaf jafn sæt og krúttleg :) knús frá okkur í Austurberginu

    Comment by Íris — 16 April, 2009 @ 2:10 pm

  2. sætu sætu :) hlakka svo til að fá ykkur heim í sumar!!

    Comment by Ellen — 16 April, 2009 @ 10:47 pm

  3. Jáaaaaaaaaaaaaaaaaaa við ætlum að vera með FEST :)

    Comment by Anna Birna — 20 April, 2009 @ 7:25 pm

  4. Það sem þau eru sæt! Hvað það verðu gaman að fá að kynnast þeim betur í sumar. Knús í ykkar hús og til hamingju með 7. apríl. Amma María og afi.

    Comment by Maja — 26 April, 2009 @ 7:10 pm

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment