Vegabréf og kosningar
Við fórum í íslenska sendiráðið í gær til að fá vegabréf fyrir krakkana og svo notuðum við tækifærið og kusum í leiðinni. Krakkarnir endurhönnuðu náttúrulega sendiráðið og léku á allsoddi ![]()
Það var gjörsamlega farið í allt og var kjörklefinn vinsæll. Þar hlupu þau inn og út og tjaldið sem var fyrir var svakalega mikið sport svona eins og gardínurnar heima. Myndatakan tókst ágætlega með strákana en Karítas Ísold þurfti nokkrar tilraunir, hún var að horfa upp í loftið hún, setti hendurnar í andlitið, hún horfði á gólfið, hún horfði á bara eitthvað allt annað en myndavélina.
En hvað um það á endanum hafðist þetta og á meðan dunduðu strákarnir sér við að dreyfa mold út blómapottunum um allt gólf og hinn henti rusli upp úr ruslatunnunum og dreyfði því vel um skrifstofuna.
Þegar að vegabréfsdótið var búið þá kusum við Biggi, já það fór ekki venjulegur stafur á kjörseðilinn okkar, heldur eitthvað nýtt fyrir nýtt Ísland
Vorið er komið til Noregs og því þarf að fara að huga að garðvinnu þó að snjórinn sitji enn í garðinum. Við þurfum að fara að klippa trén áður en við verðum aftur of sein með það. Ferskutréð er tilbúið og fer ég í eplatréð og runnan um helgina. Annars þurfum við að fara að kaupa sumarskó á krakkana á eftir því þau eru að fara að byrja í leikskólanum eftir viku…….ótrúlegt, alveg ótrúlegt!!!
Jæja kveð að sinni…..Ása í vorskapi
hey vó hey byrja þau eftir viku?? áttu þau ekki að byrja í águst?? Frábært að fá svona snemma inn fyrir þau, til hamingju með það.
Comment by Ellen — 18 April, 2009 @ 12:30 pm
Gleðilegt sumar !
Myndirnar eru alveg frábærar. Mikið hafa krakkarnir stækkað. Gaman að sá öll skemmtilegu svipbrigðin sem koma á þau við að lita. Þið eruð nú alveg frábærlega dugleg að taka myndir.
Af okkur er allt gott að frétta en Jón afi er orðinn ósköp lasinn.
Bestu kveðjur úr Garðabænum.
Comment by Laufey Jónsdóttir — 24 April, 2009 @ 12:00 am
Gaman að sjá karakterana koma fram í andlitum þríburana. Hver hefur sinn svip. Ég hlakka til að fá ykkur heim í sumar. Grillum saman. Á von á því að börnin vilji sulla með fiskunum í útitjörninni.
Kossar og kveðjur frá Hamrakór 9. Kópavogi.
Afi, Guggi.
Comment by Guðbrandur Jónsson — 26 April, 2009 @ 1:58 pm