Sumar og sól……
Já héðan er talsvert að frétta…..veikindasögur og slysasögur halda áfram….

Birkir Smári náði að handleggsbrjóta sig fyrir 2 vikum og er litla skinnið búinn að vera vera í gifsi eða öllu heldur nokkrum gifsum. Hann náði alltaf að klæða sig úr gifsinu og var bara með það einhversstaðar í rúminu þegar ég náði í hann á morgnanna, þannig að tekið var upp á því að setja hann bara í gifs upp fyrir olnboga. Það hefur tollað ![]()
En það sem að gerðist var það að hann datt bara niður úr stól og lenti svona illa á hendinni, hann fór sem sagt niður bak meginn á stólnum þannig að fallið var aðeins hærra. En hann er allur að koma til og tökum við sennilega bara gifsið af honum fljótlega. Það var talað um 2 - 3 vikur á spítalanum.
Síðan er það Birgir og börnin, þau fengu sem sagt öll kvef og hálsbólgu og eru búin að vera hóstandi í 3 vikur. Biggi fékk síðan lungnabólgu í kjölfarið og mikið kurrar í krökkunum. Þannig að enginn fór á leikskóla þessa vikuna. Nú vona ég að þau fari að hressast þannig að þau geti farið í leikskólann á mánudaginn.
En það er búið að vera rosalega gott veður síðustu daga og er garðvinnan hafin, ég ætla að bæta í garðinn moreller-trjám eða kirsuberjatrjám, svo er það bara að rífa upp arfa og önnur leiðindi úr beðunum!
Kveðja
Ása úr sumarveðrinu
Æ litla skinnið, en það er nú gott að sjá hann svona brattann með gifsið og svo er hann orðinn það bjartsýnn að hann þarf að nota sólgleraugu. Ástarkveðja amma
Comment by amma Brynja — 2 May, 2009 @ 11:16 am
Hæhæ
Vildi bara kvitta fyrir mig. Var að skoða myndirnar ykkar og skoða þessi fallegu börn…(og foreldra hehe,) gaman að sjá hvað þau hafa vaxið og dafnað vel! Vona að allt gangi vel hjá ykkur þó nóg sé um að vera á bænum:)
Bestu kveðjur til ykkar allra
Heiðrún
Comment by Heiðrún Jóhannsdóttir — 3 May, 2009 @ 10:09 pm
Það gengur á ýsmu hjá stórri fjölskyldu.
Kraftmikill ungur snáði hann Birkir Smári og að ég tali nú ekki um hvað hann er mikill töffari á þessari mynd með gifs og sólgleraugu.
Gangi ykkur vel.
Kveðja Lára
Comment by Lára — 8 May, 2009 @ 2:11 pm
Hæhæ þið öll
oh það eru erfið svona “veikinda”tímabil, þetta gengur þó yfir með tímanum, trust me!! Nú styttist í ykkur hér í Lundinn og ég veit ekki betur en að Hannes og Elke verði hér á sama tíma - svo það verður líf og fjör
Heyri í ykkur fljótlega, klukkan er bara alltaf orðin aðeins of mikið til að hringja, kv Níní
Comment by Níní — 10 May, 2009 @ 11:27 pm