28 May, 2009


Leikskólinn og strípalingar

Filed under: Blog — 3burar @ 10:03 pm

Krakkarnir komnir á fullt á leikskólann aftur eftir smá veikindatímabil eftir aðlögun. Enn er grátið þegar ég fer en þau hætta fljótt að gráta og þegar ég kem að ná í þau er grátið. Alveg frábært að vera kannski ein að ná í þau og öll vilja þau að ég taki þau upp og haldi á þeim, það er stundum erfitt að vera þríburamamma. Allir öskrandi og henda sér í gólfið af því ég get ekki tekið þau upp. Já frábært líka þegar að aðrir foreldrar eru að ná í börnin sín og klæða þau í fötin, þá er varla talandi saman fyrir mínum börnum, já þetta er vel upp alið það er ekki hægt að segja annað.
En annars plumma þau sig alveg ágætlega bara á leikskólanum, Karítas Ísold er strax orðin þekkt fyrir danstaktana sína og strákarnir náttúrulega fyrir sjarminn.

Mesta sportið þessa dagana er að kúka á gólfið heima á kvöldin. Hlini snær er með vinninginn fyrir lengd ef marka má viðbrögð Kolla. Kolli sat í sófanum og gláfti á sjónvarpið og byrjað svo að snusa eitthvað út í loftið…og í öllu þessu snusi sínu var honum litið niður á gólf þar sem að “rónalolli” var á gólfinu eins og hann orðaði það. Kolli öskrandi inn í stofu það er bara eins og fullorðinn maður hafi komið þessu frá sér!
Og svona þegar maður er að láta tólin anda aðeins á kvöldin þá þarf maður nú líka að þrífa upp pissupollana hér og þar. Ég veit ekki alveg hvað þetta er með strákana en um leið og bleian er tekin af þeim þá bara byrja þeir að spræna og eru bara meira og minna sprænandi upp um allt og út um allt. En það er gaman að þessu :)

Annars erum við að fara í frí, ætlum að fara til Flensburgar að hitta Eivor og Alex og strákana þeirra. Við ætlum að prófa núna að taka bátinn til Danmerkur og keyra svo niður Fjón til þeirra. Svo förum við og hittum allt gengið í Lundi, hrikalega hlakka ég til.
Og svo eftir 2 vikur er sama ferð til baka þannig að við ætlum að gista eina nótt í århus á Radisson sas hóteli. það verður sennilega gaman þar í morgunverðarhlaðborðinu ;)

Annars er ég svona að byrja að líta í kringum mig varðandi vinnur, er að vinna í að þýða CV-ið mitt yfir á norsku og svona koma mér í stellingar. Spennandi tímar framundan ekki hægt að segja annað.

jæja farin að sofa, hugsa að ég komi samt ekki inn myndum áður en við förum en ég ætla að reyna að komast í það. Betra að lofa engu en ég reyni mitt besta að komast í það mál.

2 Comments »

  1. vá spennandi kúkasögur. Já ég á ekki við þetta vandamál að stríða að þrífa upp kúkagaura af gólfinu
    Hjukket. Er svo spennandi að byrja á leikskólanum. SBR byrjar í ágúst. Búin að fara í heimsókn á leikskólann. Foreldrarnir rosa spenntir.

    Bestu kveðjur

    Helga Guðný og Co

    Comment by Helga Guðný — 29 May, 2009 @ 12:39 am

  2. Hæhæ bara að tjékka hvort það væru komnar myndir frá Lundinum - henti inn einu albúmi hjá okkur í kvöld. Þar er ein mynd sem Kiddi tók sérstaklega handa ykkur á meðan börnin voru hjá okkur í pössuninni :)
    Það er nú bara næstum því tómlegt hér á bæ eftir að þið fóruð og ég sakna nú allra knúsanna sem Birkir Smári gaf mér - viss um að hann saknar mín þó hann geti ekki sagt frá því :) og að hnoðast í Karitas Ísold og Hlina Snæ líka - svakalega flottir og skemmtilegir krakkar sem þið eigið!
    Bestu kveðjur Níní og co

    Comment by Níní — 17 June, 2009 @ 11:38 pm

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment