Síðustu fréttir
Já ég hef bara ekki bloggað staf í hálft ár eða eitthvað álíka. Þannig að ég ákvað bara að fara að laga þetta mál hérna. Héðan er náttúrulega bara allt fínt að frétta. Eins og er hafa krakkarnir allir legið með upp og niður eða samt aðallega niður sem er kannski svínaflensan, sumir eru víst bara með þannig einkenni. Ég er allavegana að vona það að þau séu bara búin með pakkann, þar sem að au-pair stelpan okkar er að hætta núna í lok nóvember og eftir það verðum við foreldrarnir að taka okkur frí úr vinnu til að vera heima með þeim.
Og já það minnir mig á eitt ég er sem sagt byrjuð að vinna. Er að vinna hjá spænskum alþjóðlegum banka sem heitir Santander Consumer Bank og það er bara alveg rosalega gaman. Það var bara ekkert erfitt að byrja aftur að vinna, fannst bara eins og ég hefði farið í langt helgarfrí. Sem að er bara alveg æðislegt. Við förum sem sagt út kl 06:50 á morgnanna og krakkarnir eru komnir í leikskólann kl 07:00 og svo bruna ég í vinnuna og get þá hætt rúmlega 15:00 og þá bruna ég aftur í leikskólann til að ná í þau. Bara alveg fullkomið!
Áður en ég byrjaði að vinna kíktum við Karítas Ísold í helgarferð til Íslands, ömmum og öfum til mikillar gleði :) Það var alveg rosalega gaman að koma aftur heim og hitta alla. Svo var líka kíkt í búðir og verslaðar jólagjafir og að sjálfsögðu var farið í klippingu. Klipping og litun í Noregi kostar sko um 40.000 ISK. Þannig að þegar maður kemst í klippingu fyrir 14.000 ISK þá hikar maður nú ekki við svoleiðis kosta kjör.
Brynja og Jómbi eru svo að koma til okkar í byrjun Des og ætlum við að kíkja í helgarferð til Gautaborgar með allt gengið. Maður þarf nú að tékka hvernig er að vera með krakkana á hóteli svona áður en við förum að ferðast eitthvað meira með þau :) En það verður örugglega frábært að fara til Gautaborgar í des þar sem að Norðmenn eru alveg steingeldir í jólaskreytingum.
Svo koma Mamma og Pabbi 16.des og verða fram yfir nýtt ár hjá okkur, það verður aldeilis fínt að hafa þau gömlu hjá okkur yfir jólin. Allavegana fullt til að hlakka til.
Og já svo erum við að fara upp í fjallabústað Gumma bróður með Gunna og Laufey, Erni og Unni og kannski Rakel og Konna þann 20.nóv í snjó(skíða)ferð. Planið er bara að borða góðan mat og hafa það nice, allir með krakkana og svona þannig að það verður bara gaman :)
Jæja ég ætla að verða duglegri að blogga og setja inn fréttir af okkur. En því miður eru engar myndir, ég verð bara að viðurkenna það að ég hef bara ekkert tekið neinar myndir núna. Kveðja frá okkur í Noregi
14.000 kr???!!! Hvað í ósköpunum er gert við hárið á þér?
Heyrði í dag frá Rakel að það væri búið að oppna lyftur þarna úti! Alveg vona ég sjálfur að það sjáist ekki snjókorn hérna í allann vetur! Næsta vetur skal ég íhuga það (þ.e þegar húsið er komið í loftið)!
Comment by Sturla — 12 November, 2009 @ 11:20 pm