23 November, 2009


Fyrsta skíðaferð vetrarins afstaðin :)

Filed under: Blog — 3burar @ 10:17 pm

Jæja þá er fyrsta skíðaferð vetrarins afstaðin og tókst bara svona líka vel.  Það var nú reyndar ekkert brjálaður snjór en alveg nóg fyrir okkur engu að síður.  Við fórum með Gunna(Mæjónesi), Laufey og Þórarni og Erni, Unni, Elísu Rún og Hlyn, ferlega skemmtilegur hópur sem kunni sko sannarlega að borða góðan mat við öll mál :)

Góðar saman að teikna

Góðar saman að teikna

Myndatökurnar urðu því miður ekki margar, þegar ég tók myndavélina fram við fyrsta tækifæri þá held ég að ég hafi náð að smella af 5 myndum og svo var batteríið búið!  Já þegar maður er með batterígrip þá gleymist oft að hlaða þar sem að það þarf nú bara alls ekki oft!  En svona fór þetta víst núna, við bætum úr þessu og myndum þau bara heima í staðinn.  Þau eru alltaf jafn sæt alveg sama hvað backgroundið er.

Svo er það jólahlaðborð í vinnunni hjá mér á föstudaginn, það verður forvitnilegt og eflaust gaman að kynnast vinnufélögunum með öðrum vinkli.

Annars er Anusha aupair stelpan okkar að hætta á miðvikudaginn.  Já og þá erum við bara orðin ein í kotinu!  Alveg ótrúlegt, höfum nánast ekki verið ein í húsinu frá því að krakkarnir fæddust.  Það er viss léttir að hún sé að fara en samt dálítið erfitt, samt aðallega vinnulega séð.  Ef þau verða veik þá verðum við að vera heima eða annað okkar.  Þá er engin Usha til að dekka veikindi heima meðan við vinnum, já en við höfum þetta af eins og hvað annað :)

2 Comments »

  1. Alltaf jafn yndislega litla daman komin með svo sítt hár.

    Comment by Brynja — 24 November, 2009 @ 5:55 pm

  2. Hæhæ og takk fyrir síðast þó stutt hafi verið :)

    Gaman að lesa nýjar fréttir, endilega halda þessu áfram.

    Knús á ykkur öll
    Eivor

    Comment by Eivor — 25 November, 2009 @ 5:25 pm

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment