Afmælisveisla yfirstaðin !
Jæja þá eru krakkarnir orðnir 2.ára, ótrúlegt en satt. Við vorum með svaka afmælisveislu fyrir krakkana og að sjálfsögðu vorum við líka með stærsta snjókarl í Noregi og þó víða væri leitað. Það voru nú ekki margir Norðmennirnir sem mættu í afmælið en sögur fara af því að skreytingarnar hafi verið “Harry” að þeirra sögn(a.k.a. Åse). En Krakkarnir höfðu gaman af og foreldrarnir líka :) Krakkarnir fengu svo mikið af pökkum að sumir pakkar voru bara hreynlega ekki opnaðir og verður unnið hörðum höndum við að opna pakka næstu daga áður en að næsta pakkaflóð byrjar ;) Annars bara takk fyrir krakkana !
Hér kemur mynd af blæstri og svo hinum fræga snjókarli. Annars skelli ég inn myndum á myndasíðuna við betra tækifæri.

Allir að blása :o
Og svo er það snjókarlinn svakalegi :)

Snjókarlinn
Vááá geðveikur snjókall hehe
Innilega til hamingju, greinilega mikið fjör.
Knús á ykkur öll
Comment by Eivor — 22 December, 2009 @ 9:58 pm
Hann er býsna stór þessi já meira að segja Biggi verður lítill við hliðina á honum… gleðileg jól til ykkar allra og til hamingju með börnin, þau eru óttaleg krútt
Comment by Davíð í Lundi — 24 December, 2009 @ 8:20 am
Þetta er náttúrulega ekkert smá öflugur snjókarl! Þið hafið verið dugleg að hnoða í hann
Til hamingju annars með krílin. Alveg til skammar að maður hafi ekki séð þau í eigin persónu.
Bætum úr því næst þegar þið komið á klakann, eða við til Norge
Gleðilega hátíð annars og hafið það sem best um jólin!
Elli frændi.
Comment by Ellert — 25 December, 2009 @ 3:45 am